Ný landskönnun á geðræktarstarfi í skólum

Embætti landlæknis hefur gefið út nýja skýrslu um niðurstöður landskönnunnar á geðrækt, forvörnum og stuðningi við börn og ungmenni í skólastarfi á Íslandi. Könnunin var lögð fyrir á fyrri hluta þessa árs í öllum framhaldsskólum landsins og um 70% allra leik- og grunnskóla.

Könnunin náði yfir breitt svið stefnu og starfshátta skóla á ólíkum skólastigum, umhverfis og aðstæðna, uppbyggingu þekkingar og færni meðal starfsfólks, skólatengsla, jafnréttis og þátttöku í skólastarfi, kennslu í félags- og tilfinningafærni, eflingar jákvæðrar hegðunar, mats og stuðnings í skólastarfi og samstarfs við foreldra og stofnanir um velfarnað barna og ungmenna.

Er þetta umfangsmesta yfirferð sem farið hefur fram til þessa á stöðu geðræktar í íslenskum skólum og gefa niðurstöður mikilvæga innsýn í stöðu málaflokksins hér á landi.

Könnunin var liður í aðgerð B.2 í geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda til ársins 2020 þar sem markmiðið var að afla upplýsinga um hvernig stuðlað er að góðri geðheilsu og vellíðan barna og ungmenna í skólakerfinu.

Starfshópur á vegum embættis landlæknis, þar sem sátu fulltrúar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Menntamálastofnun, Kennarasambandi Íslands, Heimili og skóla og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, nýtti niðurstöður könnunarinnar við gerð tillagna um aðgerðir til stjórnvalda varðandi geðrækt, forvarnir og stuðning við börn og ungmenni í skólastarfi.