Nordregio Forum 2021 – Áhrif fjarvinnu á byggðaþróun og græna umbreytingin

Áhrif fjarvinnu á byggðaþróun og græna umbreytingin eru aðalmálefnin á dagskrá árlegrar ráðstefnu norrænu byggðastofnunarinnar, Nordregio, sem verðu haldinn á netinu 23.-24. nóvember nk.

Sannarlega áhugaverð og aðkallandi málefni fyrir íslensk sveitarfélög og því er sveitarstjórnarfólk hvatt til að nýta tækifærið og skrá sig til þátttöku.

Í kynningu kemur fram að við stöndum frammi fyrir nýjum veruleika eftir Covid þar sem það hefur verið sannreynt að fólk getur unnið í fjarvinnu frá ýmsum stöðum. Hvaða tækifæri býður þetta upp á fyrir dreifbýli og þéttbýli? Hvernig geta ríkisstjórnir og sveitarfélög stutt við þessa þróun? Í málstofunni um græna umbreytingu verða rædd áhrif þessara umbreytinga á sveitarfélög og svæði og hvernig hægt sé að leiða samfélög í gegnum sanngjarna græna umbreytingu. Hvernig tókst smáborginni Lahti í Finnlandi að öðlast viðurkenningu ESB sem græn höfuðborg Evrópu 2021, hvernig er hægt að vinna að markvissum svæðisbundnum loftslagsstefnum og hvernig á að ná því markmiði að öll dönsk sveitarfélög hafi sett sér aðgerðaráætlun í loftslagsmálum 2030?