Merkilegar merkingar

FENÚR, fagráð um endurvinnslu og úrgangs, býður til fundar um bætta úrgangsstjórnun á Íslandi miðvikudaginn 11. nóvember kl. 13:00 og stendur fundurinn til kl. 14:30. Fundurinn kallast Merkilegar merkingar– komum á samræmdum merkingum í úrgangsmálum!

Á fundinum mun félagið leggja fram sínar tillögur að nýjum valfrjálsum samræmdum merkingum fyrir flokkun úrgangs. Verkefnið byggir á dönskum úrgangsmerkingum og norrænu samstarfi um samræmdar merkingar í úrgangsmálum. Markmið þess er að styðja við bætta úrgangsstjórnun á landinu. Samræmdar merkingar í úrgangsmálum er verkefni sem hefur hlotið styrk frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Aðeins félagar í Fenúr sem greitt hafa félagsgjöld geta setið fundinn og skráning fer fram á fenur@fenur.is.

Dagskrá

  • Ávarp,
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
  • A joint Nordic pictogramsystem under way,
    Anna-Carin Gripwall, Head of Communication Avfall Sverige
  • Tillögur að íslenskri útgáfu af samræmdum norrænum úrgangsmerkingum,
    Eygerður Margrétardóttir, formaður FENÚR og verkefnisstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Fyrirspurnir og umræður
  • Fundarslit

Fundarstjóri er Gunnar Dofri Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum og samfélagsvirkni hjá SORPU bs.