Landsþing samþykkir þingsályktunartillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

XXXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélag samþykkti í dag að mæla með því við Alþingi að fyrirliggjandi þingsályktunartillaga um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023.

XXXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélag samþykkti í dag að mæla með því við Alþingi að fyrirliggjandi þingsályktunartillaga um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023 verði samþykkt.

Aðeins eitt málefni var á dagskrá þingsins að þessu sinni, framangreind þingsályktunartillaga, en í henni er gert ráð fyrir því að sveitarfélögum muni fækka verulega fyrir árið 2022 og enn frekar fyrir árið 2028. Framsögur og umræður á þinginu voru teknar upp og eru aðgengilegar á vef sambandsins.

Tillaga stjórnar til landsþingsins

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga haldið 6. september 2019 samþykkir að mæla með því að Alþingi samþykki fyrirliggjandi þingsályktunartillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019-2023. Í tillögunni er gert ráð fyrir veglegum fjárhagslegum stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við sameiningar sveitarfélaga og því er mikilvægt að ríkissjóður veiti sérstök fjárframlög til sjóðsins til að fjármagna þann stuðning.