Kynningarfundur um handbók í íbúalýðræði

Samband íslenskra sveitarfélaga gekkst í gær fyrir kynningarfundi vegna handbókar um aðferðir og leiðir í íbúalýðræði sem kom nýlega út á vegum sambandsins. Fundarmönnum gafst einnig kostur á þátttöku með fjarfundarbúnaði. Kynningarfundinum var ætlað að fylgja eftir útgáfu handbókarinnar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi.

Samband íslenskra sveitarfélaga gekkst í gær fyrir kynningarfundi vegna handbókar um aðferðir og leiðir í íbúalýðræði sem kom nýlega út á vegum sambandsins. Fundarmönnum gafst einnig kostur á þátttöku með fjarfundarbúnaði. Kynningarfundinum var ætlað að fylgja eftir útgáfu handbókarinnar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Handbókin er gefin út af alþjóða- og þróunarsviði sambandsins og er hún mikilvægur liður í þekkingaruppbyggingu um íbúasamráð sveitarfélaga hér á landi.

Af öðrum verkefnum, sem sambandið hefur staðið fyrir á þessum vettvangi, má nefna námsferð sem farin var til Svíþjóðar haustið 2016 og gaf sveitarstjórnarfólki kost á að kynna sér hvernig sænsk sveitarfélög vinna með íbúalýðræði. Þá gekkst sambandið fyrir málþingi ári síðar eða haustið 2017, þar sem kynnt voru fyrirmyndarverkefni sveitarfélaga hér á landi á þessu sviði.

Kynningarfundur-handbok-ibualydraedi Frá kynningarfundinum í gær, en hann fór fram í húsnæði sambandsins, Borgartúni 30. (Ljósm. IH)