Kynning á stafraen.sveitarfelog.is

Hrund Valgeirsdóttir, verkefnastjóri í stafrænni umbreytingu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir frá því hvað er að finna á vefsíðunni stafraen.sveitarfelog.is í dag.

Hrund segir okkur meðal annars frá því hvernig Lausnatorgið, Reynslusögur og Kistan geta nýst sveitarfélögum í stafrænni umbreytingu. Þá segir hún okkur frá áhættugreiningu kennsluhugbúnaðar, sem er birting fyrir kennsluhugbúnað sem nokkur sveitarfélög tóku sig saman um að áhættugreina með aðstoð sumarstarfsmanna og verktaka.