Kosið um breytingu á nafni Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Samhliða forsetakosningunum þann 1. júní nk. kjósa íbúar Skeiða- og Gnúpverjahrepps um það hvort skipta eigi um nafn á sveitarfélaginu.

Verði niðurstaða kosninganna þannig að meirihluti sé fyrir því að velja nýtt nafn á Skeiða- og Gnúpverjahrepp og hafin verði nafnasamkeppni með það að markmiði að kjósa um nýtt nafn á sveitarfélaginu samhliða næstu alþingiskosningum.

Í frétt á vef Skeiða- og Gnúpverjahrepps kemur fram að rétt til þátttöku í kosningunum hafi  hver íslenskur, danskur, finnskur, sænskur eða norskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning hefst og á skráð lögheimili í því sveitarfélagi sem íbúakosning fer fram.  Erlendur ríkisborgari (af öðru þjóðerni en talið er upp hér fyrir ofan) hefur rétt til þátttöku ef hann hefur átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir lokadag atkvæðagreiðslu, ef hann hefur náð 18 ára aldri og er með skráð lögheimili í sveitarfélaginu.  

Kjörskrá kemur til með að liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá föstudeginum 17. maí nk.  og kjörstaður verður í Þjórsárskóla líkt og forsetakosningin. 

Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá og með föstudeginum 17. maí frá kl. 9.00 - 16.00 mánudaga til fimmtudaga en 8-14 á föstudögum - á virkum dögum.