Karl Björnsson framkvæmdastjóri tilkynnir starfslok

Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur tilkynnt að hann muni láta af starfi sínu þann 1. maí nk. og fara á eftirlaun.

Karl Björnsson fráfarandi framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Karl var ráðinn bæjarstjóri á Selfossi árið 1986, aðeins 29 ára að aldri, og gegndi því starfi til ársins 1998 þegar hann tók við starfi bæjarstjóra í hinu nýstofnaða sveitarfélagi Árborg. Árið 2002 tók hann við starfi sviðsstjóra kjarasviðs sambandsins, sem þá var nýstofnað, og sinnti því starfi þar til hann tók við sem framkvæmdastjóri sambandsins 1. september 2008.

Á fyrri árum starfaði hann sem sérfræðingur hjá Framkvæmdastofnun ríkisins og sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Karl hefur átt sæti í fjölda nefnda, ráða, stjórna og starfshópa fyrir sambandið, sveitarfélögin og ríkið í tengslum við störf sín. Starfsferill hans, sem spannar rúmlega 40 ár frá því að hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur úr þjóðhagskjarna (Cand.oecon) frá Háskóla Íslands, hefur því allur verið helgaður sveitarstjórnar- og byggðamálum.

Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa notið þeirrar gæfu að hafa starfað á sveitarstjórnarstiginu öll þessi ár. Ég hef haft tækifæri til að kynnast fjölda skemmtilegs og áhugaverðs fólks á starfsævinni, vinnufélagar mínir og samstarfsfólk hafa veitt mér mikla gleði og færi ég öllum viðkomandi kærar þakkir fyrir samskiptin og samstarfið. Einnig er ég þakklátur fyrir allan þann skilning sem fjölskylda mín hefur sýnt öll þessi ár vegna þeirrar fjarveru frá heimili sem óhjákvæmilega fylgir þeim erilsömu störfum sem ég hef sinnt. Ég er þó ekki alveg hættur enn sem komið er og stefni ég að því að skila af mér góðu búi til arftaka míns þ. 1. maí nk.“, segir Karl Björnsson, fráfarandi framkvæmdastjóri sambandsins.

Gert er ráð fyrir að fljótlega verði starf framkvæmdastjóra sambandsins auglýst laust til umsóknar.