Íslensku menntaverðlaunin

Á alþjóðlegum degi kennara, þann 5. október sl. kynnti Gerður Kristný, skáld og formaður viðurkenningarráðs íslensku menntaverðlaunanna, hverjir eru tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna 2022 í Síðdegisútvarpi Rásar 2.

Tengill á síðdegisútvarp Rásar 2

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum.

Verðlaunin eru veitt í þremur aðalflokkum; fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennara, framúrskarandi þróunarverkefni og framúrskarandi iðn- og verkmenntun sem er nýr flokkur í ár. Þá verða að auki veitt hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.

Tilnefningar hljóta að þessu sinni:

Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur

Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Þessir skólar eru tilnefndir:

  • Allegro – Suzuki tónlistarskóli
  • Leikskólinn Akrasel
  • Leikskólinn Rauðhóll
  • Tæknimenntaskóli Tækniskólans.

Framúrskarandi kennari

Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Tilnefndir eru þessir kennarar:

  • Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, kennari við Reykholtsskóla í Bláskógabyggð
  • Elísabet Ragnarsdóttir, leikskólanum Heiðarborg í Reykjavík
  • Guðríður Sveinsdóttir, kennari við Giljaskóla á Akureyri
  • Mikael Marinó Rivera, kennari við Rimaskóla í Reykjavík
  • Valdimar Helgason, kennari við Réttarholtsskóla í Reykjavík.

Framúrskarandi þróunarverkefni

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ýtrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Eftirfarandi verkefni eru tilnefnd:

  • Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar
  • Skrekkur, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur
  • Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi leikskólabarna. Ásthildur Bj. Snorradóttir og Menntamálastofnun.

Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun

Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Tilnefningar fá:

  • Málarabraut Byggingartækniskóla Tækniskólans
  • Hársnyrtibraut Verkmenntaskólans á Akureyri
  • Átaksverkefnið #kvennastarf – Tækniskólinn í samstarfi við iðn- og verkmenntaskóla.