Íbúakönnun landshluta farin af stað

Íbúakönnun landshlutanna er nú farin af stað. Könnunin er á vegum Byggðastofnunar, landshlutasamtakanna og atvinnuþróunarfélaga og er hún ætluð öllum íbúum á Íslandi sem náð hafa 18 ára aldri.

Tilgangur könnunarinnar er að kanna hug íbúa til búsetuskilyrða, aðstæðna á vinnumarkaði og afstöðu til ýmissa atriða.

Niðurstöður þessara kannana veita dýrmæta innsýn í stöðu íbúa á landsbyggðinni, nýtast fræðimönnum við innlenda háskóla, hjálpa sveitarfélögum og sveitarstjórnarfólki að móta áherslur í starfi sínu og geta einnig nýst í hverskonar stefnumótunarvinnu innan sveitarfélaga, landshlutasamtaka og Byggðastofnunar, svo eitthvað sé nefnt.

Íbúakönnun landshlutanna er samstarfsverkefni landshlutasamtaka á landsbyggðinni og Byggðastofnunar og hefur verið framkvæmd á þriggja ára fresti frá árinu 2004. Vífill Karlsson, Ph.D. í hagfræði hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hefur yfirumsjón með skipulagi og framkvæmd könnunarinnar, ásamt því að vinna úr niðurstöðum með Helgu Maríu Pétursdóttur hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Könnunina er hægt að taka á íslensku, ensku og pólsku.

Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessari könnun með því að fara í gegnum þessa slóð.

Skoða má niðurstöður úr fyrri könnunum á mælaborði Byggðastofnunar hér.