Handbók vinnuskóla

Umboðsmaður barna hefur gefið út Handbók vinnuskóla 2021. Í handbókinni er einnig að finna leiðbeiningar um endurmat ungmenna á vinnuskólanum og um sjálfsrýni ungmenna, ásamt öðru áhugaverðu efni um starfsemi vinnuskóla.

Flest sveitarfélög starfrækja vinnuskóla fyrir ungmenni yfir sumartímann en það er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaga. Það er mikilvægt að sveitarfélög séu meðvituð um hvert markmið vinnuskólans er en honum er ætlað að gefa börnum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu.

Umboðsmaður barna stóð fyrir könnun árið 2018 meðal sveitarfélaga um vinnuskóla sem reknir eru á þeirra vegum og í janúar 2019 gaf umboðsmaður út skýrslu með niðurstöðum könnunarinnar. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að skerpa þarf á regluverki því er tekur til reksturs vinnuskóla auk þess sem auka þarf meðvitund sveitarfélaga um ábyrgð þeirra, einkum hvað varðar öryggis- og fræðslumál.

Þá þarf að bæta leiðbeiningar til sveitarfélaga um hlutverk, skipulagningu og framkvæmd vinnuskólans. Leiðbeinandi viðmiðunarreglur um vinnuskóla voru gefnar út árið 2012 og var það gert í samræmi við bókun við kjarasamningsgerð sveitarfélaga, almennra stéttarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga árið 2011.

Handbók Vinnuskóla sveitarfélaga