Guðríður Aadnegard hlaut hvatningarverðlaun gegn einelti

Guðríður Aadnegard, náms­ráðgjafi og um­sjón­ar­kenn­ari við Grunn­skól­ann í Hvera­gerði, hlaut hvatn­ing­ar­verðlaun dags gegn einelti sem veitt voru 9. nóvember sl.

Gu[ni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Guðríður Aadnegard, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Sigrún Edda Eðvaldsdóttir, formaður Heimilis og skóla. Ljósm.: MOTIV.

For­seti Íslands, Guðni Th. Jó­hann­es­son, og Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra af­hentu Guðríði verðlaun­in við hátíðlega at­höfn í Rima­skóla.

Góð fyr­ir­mynd annarra kenn­ara

Fagráð gegn einelti hjá Mennta­mála­stofn­un valdi verðlauna­hafa úr inn­send­um til­nefn­ing­um og varð Guðríður fyr­ir val­inu vegna þess ómet­an­lega starfs sem hún hef­ur unnið í einelt­is­mál­um und­an­far­in ár. Hún sé þar að auki góð fyr­ir­mynd fyr­ir aðra kenn­ara þegar kem­ur að sam­skipta­mál­um nem­enda, að því er greint frá í til­nefn­ing­unni. Hún hafi í gegn­um tíðina látið mál­efni nem­enda sig sér­stak­lega varða og nálg­ast þau af mik­illi hlýju og virðingu. Þá hefur Guðríður einnig látið til sín taka á vett­vangi íþrótta þar sem hún starfaði í broddi fylk­ing­ar hjá HSK, UMFÍ og ÍSÍ. Þar hafi hún sem fyrr ávallt haft hag iðkenda að leiðarljósi og lagt ríka áherslu á góð sam­skipti inn­an vall­ar sem utan.