Grunnnámskeið fyrir starfsfólk í vaktavinnu

Verkefnastjórn betri vinnutíma í vaktavinnu býður starfsfólki í vaktavinnu hjá sveitarfélögum, Reykjavíkurborg, ríki, og á sjálfseignarstofnunum að koma á grunnnámskeið í betri vinnutíma í vaktavinnu.

Á námskeiðinu verður farið yfir:

  • Helstu atriði kerfisbreytingar betri vinnutíma í vaktavinnu, sem tekur gildi 1. maí 2021.
  • Þátttakendum verða veittar greinargóðar upplýsingar um allt fræðsluefni sem aðgengilegt er á www.betrivinnutimi.is
  • Þátttakendum verður leiðbeint um hvernig þeir geta aflað sér frekari þekkingar á eigin spýtur.

Námskeiðið fer fram á Microsoft Teams og er klukkustundarlangt. Grunnnámskeiðið er starfsfólki að kostnaðarlausu. 

Auglýst hafa verið fjögur grunnnámskeið:

Skráningar eru á vef Starfsmenntar www.smennt.is.