Græn nýsköpun í brennidepli á Nýsköpunardegi hins opinbera

Nýsköpunardagur hins opinbera verður haldinn 17. maí næstkomandi. Viðburðurinn fer fram árlega og er markmiðið að hvetja til aukinnar nýsköpunar hjá hinu opinbera.

Þemað í ár er græn nýsköpun og er dagskráin afar fjölbreytt. Erindi sem flutt verða snúa jafnt að nýjum tækifærum í nýsköpun, sem og reynslusögum af vel heppnuðum verkefnum.

M.a. mun Stafrænt Ísland, eining innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem starfar þvert á ráðuneyti og stofnanir að því markmiði að einfalda líf fólks með stafvæðingu opinberrar þjónustu, standa fyrir svokallaðri Gov Jam vinnustofu. Þar gefst kostur á að taka þátt í hugarflugi um hvar megi bæta opinbera þjónustu með stafrænum lausnum.

Nýsköpunardagurinn er fer fram í Grósku á milli klukkan 9:00 og 15:30. Einnig verður hægt að skrá sig til þess að fylgjast með í streymi.

Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að deginum ásamt Ríkiskaupum, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.