Gátt milli Sveitarstjórnarþingsins og úkraínskra sveitarfélaga

Á vegum Sveitarstjórnarþingsins Evrópuráðsins í Strasbourg hefur verið opnuð rafræn gátt, Cities4Cities, til að koma á tengslum á milli úkranískra sveitarfélaga og sveitarfélaga innan Sveitarstjórnarþingsins.

Sambandið tilnefnir þrjá fulltrúa til setu á Sveitarstjórnarþinginu. Meginhlutverk þess er að hafa eftirlit með framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í aðildarríkjum Evrópuráðsins og Evrópusáttmála um sjálfsstjórn sveitarfélaga. Þingið fjallar auk þess um áskoranir sveitarfélaga og svæði í lýðræðis og mannréttindamálum á hverjum tíma. Það kemur saman tvisvar á ári í Strasbourg, Frakklandi.

Minnisblað um síðasta þing sem var haldið 22.-24. mars sl. en málefni Úkraínu settu að sjálfsögðu mikinn svip á það.