Ný ráðgjafarnefnd kom saman til fyrsta fundar í gær. Hlutverk ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er að gera tillögur til ráðherra um úthlutanir einstakra framlaga úr sjóðnum annarra en bundinna framlaga.
Nefndin er skipuð til fjögurra ára, frá og með 1. janúar 2023. Formaður nefndarinnar er Guðmundur Baldvin Guðmundsson, fv. oddviti í bæjarstjórn Akureyrar, sem skipaður er án tilnefningar og varaformaður með sama hætti er Sigtryggur Magnason, aðstoðarmaður ráðherra. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefndi sex fulltrúa til setu í nefndinni og jafn marga til vara.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er þannig skipuð:
Aðalfulltrúar:
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson, fv. oddviti í bæjarstjórn Akureyrar, formaður
- Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar
- Theódóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi
- Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs Akureyrarbæjar
- Hrund Pétursdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði
- Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
- Hörður Hilmarsson, skrifstofustjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar
Varafulltrúar:
- Sigtryggur Magnason, aðstoðarmaður innviðaráðherra, varaformaður
- Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps
- Halla Karen Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ
- Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar
- Gísli Sigurðsson, bæjarfulltrúi í sveitarfélaginu Skagafirði
- Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
- Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík