Fundir með sveitarfélögum um meðhöndlun úrgangs og hringrásarhagkerfið

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur leitað eftir samtali við sambandið um fundi með sveitarfélögum um drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 (mál 6/2021) og drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis (mál 11/2021) en bæði þessi mál hafa birst nýlega í samráðsgátt stjórnvalda.

Umsagnarfrestur við frumvarpsdrögin rennur út 29. janúar. Samtal við landshlutasamtökin hefur átt sér stað um fyrirkomulag fundanna. Það var mat sambandsins og ráðuneytisins að það myndi gagnast best að halda fleiri og svæðisbundna fundi þar sem horft væri til samstarfs sveitarfélaga um svæðisáætlanir um meðhöndlun úrgangs, skv. 6. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og sambandið boða hér með til þriggja funda með sveitarstjórnarfólki og starfsfólki sveitarfélaganna og fyrirtækja í þeirra eigu sem koma að úrgangsmálum og innleiðingu hringrásarhagkerfis. Einnig eru velkomnir fulltrúar í stjórnum landshlutasamtakanna og starfsfólk þeirra á hverjum stað eins og sjá má hér að neðan.

 Fundirnir verða eftirfarandi:

  • Sameiginlegur fundur með sveitarfélögum á starfssvæði FV, SSH, SSS, SSV, SASS og SSA: Þriðjudagur 26. janúar, kl. 13:00-14:30. - Smelltu hér til að tengjast fundinum
  • Fundur með sveitarfélögum á starfssvæði SSNV: Fimmtudagur 28. janúar, kl. 09:00-10:00.
  • Fundur með sveitarfélögum á starfssvæði SSNE: Fimmtudagur 28. janúar, kl. 14:00-15:30.

Dagskrá fundanna:

  1. Kynning ráðherra á drögum að stefnu og drögum að frumvarpi (ca. 20 mín.).
  2. Kynning úr héraði eða kynning frá Sambandinu (ca. 10-15 mín.).
  3. Umræður.

Fundirnir fara fram í gegnum Microsoft Teams og fer skráning fram hér að neðan.