Frábær frammistaða á Evrópumóti iðn- og verkgreina

Móttaka var nýlega haldin í Ráðherrabústaðnum fyrir fulltrúa Íslands á Evrópukeppni iðn- og verkgreina, EuroSkills, sem fram fór í Búdapest á dögunum. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra færði keppendunum, sem voru átta að tölu, viðurkenningar fyrir frábæra frammistöðu.

Móttaka var nýlega haldin í Ráðherrabústaðnum fyrir fulltrúa Íslands á Evrópukeppni iðn- og verkgreina, EuroSkills, sem fram fór í Búdapest á dögunum. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, færði keppendunum, sem voru átta að tölu, viðurkenningar fyrir frábæra frammistöðu.
Íslensku keppendurnir kepptu í trésmíði, grafískri miðlun, málmsuðu, rafvirkjun, bakstri, framreiðslu, rafeindavirkjun og matreiðslu. Undirbúningur þeirra hófst strax í vor með handleiðslu  þjálfara.

Hópurinn stóð sig vel á mótinu og uppskar þrjár viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur, sem veittar eru fyrir 700 stig og yfir. Þá hlaut Ásbjörn Eðvaldsson, rafeindavirki, silfurverðlaun í sínum flokki. 

Haraldur Örn Arnarson, prentsmiður, hlaut 704 stig og varð í 6. sæti af 14 keppendum, Jón Þór Einarsson, rafvirki, hlaut 700 stig og varð í 8. sæti af 15 keppendum og Kristinn Gísli Jónsson, matreiðslumaður, hlaut einnig 700 stig og varð í 10.-12. sæti af 23 keppendum. Auk þess kepptu Finnur Ingi Harrýsson í málmsuðu, Sigurður Borgar Ólafsson í framreiðslu, Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir í bakstri og Þröstur Kárason í trésmíði.

Ég óska þátttakendunum hjartanlega til hamingju með góðan árangur á mótinu. Keppni af þessu tagi er til þess fallin að auka metnað og skapa góð tengsl og ég efa ekki að reynsla þeirra af þátttökunni hefur verið bæði gefandi og skemmtileg. Iðnmenntun skiptir okkar samfélag afar miklu og á undanförnum misserum höfum við beitt okkur fyrir því að fjölga nemendum í iðnnámi ásamt því að auka aðgengi og áhuga á fjölbreyttu starfs- og verknámi. Fagmennska íslensku keppendanna er öðrum fyrirmynd og innblástur til góðra verka,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra við þetta ánægjulega tækifæri.