Forvarnir gegn gróðureldum

Gróðureldar eru sem betur fer ekki algengir á Íslandi en geta verið illviðráðanlegir ef eldur berst í þurran gróður.

Á undanförnum áratugum hefur trjám verið plantað í miklum mæli á Íslandi. ­Ógrisjaður,­ þéttur skógur getur verið illfær vegna þess að greinar hans eru samfléttaðar frá skógarbotni og upp úr. Slíkur skógur er hættu­legastur með tilliti til gróðurelda. Veðurfar hefur mikil áhrif á hættu á gróðurbruna og miklir gróðurbrunar verða yfirleitt í langvarandi þurrkum og hvassviðri. Eldur og reykur getur stefnt lífi fólks í hættu og valdið verulegu eignatjóni. Rétt viðbrögð og forvarnir geta þá skipt sköpum og er tilgangur www.grodureldar.is að kynna helstu atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga varðandi eld í gróðri.

Á vefnum www.grodureldar.is má finna gagnlegar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og sumarhúsaeigendur m.a. um fyrstu viðbrögð ef gróðureldar brjótast út.