Forvarnardagurinn 2024 verður settur í 19. sinn með málþingi í Inngunnarskóla í dag.
Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er þá sjónum beint sérstaklega að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Skólar skrá sig til þátttöku og vinna verkefni Forvarnardagsins á tímabilinu 2.-23. október.
Málþing Forvarnardagsins
Miðvikudagur 2. október, kl. 10:00.
Dagskrá málþings:
Skólastjóri býður gesti velkomna
Fundarstjórn – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs Embættis landlæknis
- Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir
- Landlæknir, Alma D. Möller
- Formaður borgarráðs, Dagur B. Eggertsson
- Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth:
Ekkert um ykkur án ykkar - Rödd ungmenna: Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson og Karen Hulda Finnsdóttir fulltrúar úr ungmennaráði UMFÍ
Hægt er að nálgast streymi á máþingið hér. Upptaka af viðburðinum verður aðgengileg á vef Forvarnardagsins eftir málþingið.
Embætti landlæknis fer með verkefnastjórn Forvarnardagsins og samstarfsaðilar eru embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Rannsóknir og greining, Planet Youth, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Samfés, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Bandalag íslenskra skáta, Ríkislögreglustjóri og Heimili og skóli.