Föstudaginn 20. september nk. efnir Norræna velferðarmiðstöðin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Félagsmálaráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið til vinnustofu í velferðartækni.
![](https://www.samband.is/wp-content/uploads/media/_ORIGINALS/vinnustofa-850x600-c-default.jpg)
Föstudaginn 20. september nk. efnir Norræna velferðarmiðstöðin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Félagsmálaráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið til vinnustofu í velferðartækni. Í vinnustofunni verða kynnt áhugaverð verkefni á sviði fjarþjónustu sveitarfélaga (Distance spanning solutions in municipalities). Vinnustofan fer fram á Grand hóteli í Reykjavík og hefst með léttum morgunverði kl. 09:30.
Vinnustofan, sem fer fram á ensku, er ætluð stjórnendum velferðarþjónustu í sveitarfélögum, starfsmönnum sem hafa umsjón með stuðningsþjónustu og þróun úrræða, sveitarstjórnarmönnum og öðrum áhugasömum um velferðartækni.
- Nánari upplýsingar um Velferðartækniverkefni frá Noregi.
- Dagskrá vinnustofunnar á pdf