Fjarþjónusta sveitarfélaga – vinnustofa í velferðartækni

Föstudaginn 20. september nk. efnir Norræna velferðarmiðstöðin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Félagsmálaráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið til vinnustofu í velferðartækni. 

Föstudaginn 20. september nk. efnir Norræna velferðarmiðstöðin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Félagsmálaráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið til vinnustofu í velferðartækni.  Í vinnustofunni verða kynnt áhugaverð verkefni á sviði fjarþjónustu sveitarfélaga (Distance spanning solutions in municipalities). Vinnustofan fer fram á Grand hóteli í Reykjavík og hefst með léttum morgunverði kl. 09:30.

Skráning á vinnustofuna

Vinnustofan, sem fer fram á ensku, er ætluð stjórnendum velferðarþjónustu í sveitarfélögum, starfsmönnum sem hafa umsjón með stuðningsþjónustu og þróun úrræða, sveitarstjórnarmönnum og öðrum áhugasömum um velferðartækni.