Fjárframlag til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu í sumar

Mennta- og barnamálaráðherra hefur ákveðið að styðja fjárhagslega við þau sveitarfélög sem hyggjast auka við frístundarstarf fyrir börn og unglinga í viðkvæmri stöðu í sumar vegna áhrifa heimsfaraldurs. 

Ljóst  er  að  heimsfaraldur COVID-19  hefur  haft  mikil  áhrif  á  líf  flestra  barna  og fjölskyldna hér á landi en ákveðnir hópar barna hafa þó orðið fyrir meiri áhrifum en aðrir. Það er mikilvægur hluti viðspyrnu eftir samkomutakmarkanir að tryggja aukinn stuðning við börn í viðkvæmri stöðu og bregðast þannig sérstaklega við aðstæðum þeirra.

Tekin hefur verið ákvörðun um að styðja fjárhagslega við sveitarfélög í þeim tilgangi að efla frístundastarf barna í viðkvæmri stöðu. Um er að ræða framhald fyrri aðgerða þegar sambærilegur styrkur var veittur sveitarfélögum sumrin 2020 og 2021.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra:

„COVID-19 faraldurinn hefur reynt á okkur öll. Börn og unglingar í viðkvæmri stöðu sem eru ekki virk yfir sumartímann eru í aukinni hættu á að sæta vanrækslu, félagslegri útilokun og ofbeldi eða neyta fíkniefna vegna þeirra aðstæðna sem faraldurinn hefur skapað. Við réðumst í svipuð verkefni síðustu tvö sumur sem heppnuðust mjög vel og ég tel því mikilvægt að endurtaka leikinn í ár. Á ferð minni um landið nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna hefur m.a. gefist tækifæri til að ræða við forsvarsmenn sveitarfélaga um mikilvægi þess að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu.“

Heildarfjárhæð verkefnisins nú nemur 130 milljónum króna og hefur fjármagninu verið skipt milli sveitarfélaga á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga frá Hagstofu Íslands um fjölda barna á aldrinum 12 til 16 ára í hverju sveitarfélagi í janúar 2022.

Líkt og árin 2020 og 2021 eru sveitarfélög hvött til að horfa sérstaklega til viðbótarverkefna sem miða að því að virkja hóp 12 til 16 ára barna með fjölbreyttum úrræðum og áhersla lögð á að ná til þeirra hópa sem hvað síst sækja hefðbundið frístundastarf. Líkur eru á að aldurshópurinn 12-16 ára sé í hvað minnstri virkni yfir sumartímann og í aukinni áhættu hvað varðar til dæmis áhættuhegðun og kvíða.