Þann 6. júní sl. skrifaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamning við Félag íslenskra náttúrufræðinga.

Verði kjarasamningur samþykktur mun hann gilda frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.
Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamning meðal félagsmanna FÍN. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 14. júní n.k.
Samninganefnd sambandsins vill koma á framfæri þökkum til samninganefndar félagsins fyrir gott samstarf.