Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skrifa undir kjarasamning

Þann 17. maí s.l. skrifaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamning við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Undirritun var rafræn.

Verði kjarasamningur samþykktur mun hann gilda frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Nú fer í hönd kynning á og atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn meðal félagsmanna. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 24. maí n.k.

Samninganefnd sambandsins vill koma á framfæri þökkum til samninganefndar félagsins fyrir gott samstarf.