Fasteignagjöld viðmiðunareigna

Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteigna­mat á sömu viðmiðunar­fast­eigninni um allt land. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 og 476 m3 á 808 m2 lóð.

Fasteignagjöld eru síðan reiknuð út skv. gjaldskrám sveitarfélaga sem gilda frá 1. janúar 2021. Í þessari greiningu samanstanda fasteignagjöld af fasteignaskatti, lóðarleigu, fráveitugjaldi, vatnsgjaldi og sorpgjöldum. Útreikningar voru gerðir fyrir 96 matssvæði í 50 sveitarfélögum og fengust staðfestingar á útreikningi frá öllum sveitarfélögunum. Nánari upplýsingar eru í skýrslunni Samanburður á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2021.

Hér fyrir neðan er mælaborð sem sýnir fasteignamat og fasteignagjöld árið 2021 á matssvæðunum 96. Þegar músarbendill er færður yfir þéttbýlisstað á kortinu birtast auk fasteignamats og fasteignagjalda upplýsingar um forsendur sem liggja að baki hverjum lið, t.d. álagningarhlutföll, hvort gjaldstofn sé fasteignamat eða stærð húss/lóðar og fjöldi sorptunna innifaldar í sorpgjaldi.