Drög að breytingu á reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til umsagnar í samráðsgátt

Athygli sveitarfélaga er vakin á því að í Samráðsgátt stjórnvalda eru opin til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1088/2018 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 20. október nk.

Í reglugerðardrögunum leggur Jöfnunarsjóður sveitarfélaga til breytingu á útreikningi tekjujöfnunarframlaga. Í stað þess að lækka meðaltekjur í viðmiðunarflokkum svo að framlög stemmi við það fjármagn sem er til ráðstöfunar leggur Jöfnunarsjóður til að framlögin verði aðlöguð fjárhæðinni með hlutfallsreikningi. Sú aðferð yrði í samræmi við gildandi framkvæmd Jöfnunarsjóðs þegar kemur að öðrum framlögum sjóðsins sem aðlaga þarf að tiltekinni fjárhæð.

Með breytingunni er ætlunin, auk annars, að fjölga þeim sveitarfélögum sem hljóta tekjujöfnunarframlög. Að mati Jöfnunarsjóðs myndi breytingin einnig leiða til frekari tekjujöfnunar sveitarfélaga. Sem dæmi um áhrif breytingarinnar hafa sum sveitarfélög, sem hafa hámarkstekjur á bilinu 94-97% af meðaltali hvers viðmiðunarflokks, ekki fengið úthlutað framlagi á grundvelli núgildandi framkvæmdar en myndu hljóta tekjujöfnunarframlag yrði breytingin að veruleika. Gert er ráð fyrir því að ef til þess kemur að breytingin taki strax gildi og færi því um útgreiðslu framlagsins þann 1. nóvember næstkomandi í samræmi við hina nýju aðferð við útreikning framlagsins.