Barnahús opnar útibú á Norðurlandi

Barnahús opnaði í dag útibú á Norðurlandi, hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Í útibúinu verða tekin rannsóknarviðtöl við börn og boðið upp á áfallameðferð, en þar er aðstaða fyrir bæði dómstóla og barnaverndarnefndir til að kanna grun um ofbeldi gegn börnum. 

Hingað til hafa þeir sem annast meðferð ferðast um landið en nú er komin aðstaða til að veita börnum á Norðurlandi hana á staðnum. Það býður upp á að hægt sé að hafa ýmsan æskilegan búnað við höndina, sem ekki er hægt þegar starfsfólk er á ferð og flugi, og ætti það að leiða til betri þjónustu. 

Barnahús hefur verið starfrækt í Reykjavík frá árinu 1998 með það að markmiði að hagsmunir barns séu tryggðir þegar upp kemur grunur um kynferðisbrot. Hugmyndin er að sérfræðingarnir komi til barnsins en ekki öfugt og er verið að taka þá hugmynd skrefinu lengra í útibúinu á Norðurlandi. 

Vonir standa til þess að sambærileg útibú geti starfað í öllum landsfjórðungum, en barnahús hefur fyrir löngu sannað gildi sitt. Sams konar starfsemi hefur breiðst út um Evrópu en þar eru nú um sextíu barnahús starfandi að íslenskri fyrirmynd. 

Í tilefni af tuttugu ára afmæli Barnahúss í fyrra fékk Barnaverndarstofa gjöf frá félags- og barnamálaráðherra, dómsmálaráðherra og lögreglunni á Norðurlandi eystra svo hægt væri að koma á fót útibúi fyrir Barnahús á Norðurlandi. Hefur frá þeim tíma verið unnið að því að undirbúa opnun þess í dag.