Auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

Félagsmálaráðuneytið hefur birt auglýsingum Innflytjendaráðs þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála 2019-2020. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á að veita styrki til verkefna í þágu barna og ungmenna.

Félagsmálaráðuneytið hefur birt auglýsingu Innflytjendaráðs þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála 2019-2020. Að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á að veita styrki til verkefna í þágu barna og ungmenna.

Hlutverk þróunarsjóðsins innflytjendamála er að efla rannsóknir og styðja þróunarverkefni á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Við ákvörðun um styrkveitingar verður lögð áhersla á eftirfarandi:

  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast börnum og ungmennum af erlendum uppruna.
  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem styrkja grasrótarsamtök innflytjenda og auka sýnileika þeirra og virkni í samfélaginu.
  • Rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast vinnumarkaðsmálum innflytjenda.
  • Önnur rannsóknar- og þróunarverkefni er varða málefni innflytjenda koma einnig til álita.
  • Með vísan í aðgerð A.5. í framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019 er sérstaklega óskað eftir umsóknum félags- og hagsmunasamtaka innflytjenda til þess að skipuleggja og standa fyrir innflytjendaþingi árið 2020. Markmið með innflytjendaþingi er að efla lýðræðislega þátttöku innflytjenda, efla samstarf félaga- og hagsmunasamtaka innflytjenda, áhrif þeirra á hagsmunamál sín og þátttöku þeirra í stjórnmálum.

Styrkir verða veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Að þessu sinni verða sem fyrr segir 25 milljónir króna til úthlutunar og geta styrkir að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 31. janúar 2019. Vakin er sérstök athygli á að einungis er unnt að sækja um rafrænt og er umsóknarformið aðgengilegt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins (minarsidur.stjr.is). Vísað er á nánari upplýsingar um þróunarsjóðinn á vef Stjórnarráðsins, meðal annars reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði fyrir styrkveitingum.

Í janúar mun innflytjendaráð standa fyrir opnum kynningarfundi fyrir væntanlega umsækjendur um umsóknarferlið, áherslur ársins og reglur sjóðsins. Nánar auglýst síðar.

Frekari upplýsingar fást í félagsmálaráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið frn@frn.is. Trúnaðar er gætt við meðferð allra umsókna.