Ársfundur Brákar hses.

Brák íbúðafélag hses heldur ársfund 20. júní kl. 14 í húsakynnum Húsnæðis og mannvirkjastofnunar í Reykjavík.

Brák íbúðafélag er óhagnaðardrifin húsnæðissjálfseignarstofnun og er stofnað af 31 sveitarfélag.  Markmiðið með félaginu er að reisa og reka leiguíbúðarhúsnæði um landið í samræmi við lög um almennar leiguíbúðir og með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga.  Meðal verkefn á ársfundinum er inntaka nýrra stofnaðila eða sveitarfélaga.  Frestur gefst til að óska eftir aðild fram að ársfundinum n.k. þriðjudag.  Ársfundurinn er opinn öllum og verður einnig sendur út á Teams til þeirra sem þess óska.

Fundarboð

Stjórn Brákar íbúðafélags hses. boðar til ársfundar sem haldinn verður þriðjudaginn 20. júní 2023 kl. 14 Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS í Borgartúni 21, 105 Reykjavík og í fjarfundi á Teams.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Framlagning ársreiknings til samþykktar.
  3. Áætlun um kaup eða byggingu íbúða til næstu þriggja ára.
  4. Breytingar á samþykktum.
  5. Tilkynning um skipan stjórnar.
  6. Kosning endurskoðenda.
  7. Inntaka nýrra stofnaðila.
  8. Önnur mál.

Í samræmi við 11. gr. samþykkta Brákar íbúðafélags hses. eru stofnaðilar og fulltrúaráð sérstaklega boðaðir til fundarins en skal hann opinn öllum. Stofnaðilar hafa einir atkvæðisrétt á fundinum en stjórnarmenn, stofnaðilar og fulltrúar í fulltrúaráði eru einir bærir til að leggja til breytingar á samþykktum. Tillögur til breytinga á samþykktum og/eða aðrar tillögur til ársfundar skulu berast formanni stjórnar ekki síðar en 10 dögum fyrir fundardag.

Endurskoðaður ársreikningur skal liggja frammi til kynningar minnst viku fyrir árfund.