Árbók sveitarfélaga 2020 komin út

Út er komin 36. árgangur Árbókar sveitarfélaga. Árbókin hefur í gegnum tíðina verið vinsæl meðal sveitarstjórnarfólks sem og margra annarra er láta sig sveitarstjórnarmál varða. Bókin er þægileg til uppflettingar og samanburðarrannsókna enda má finna þar ýmiskonar tölfræði úr rekstri og starfsemi sveitarfélaga á árinu 2019.

Með vísan til stefnu sambandsins um samfélagsábyrgð er árbókin ekki gefin út á prenti heldur verður hún eingöngu aðgengileg á netinu. Hana má nálgast í heild á pdf-formi og einstakar töflur eru aðgengilegar í excel.

Hag- og upplýsingasvið sambandsins hefur að venju haft umsjón með útgáfu bókarinnar. Jóhannes Á. Jóhannesson annaðist alla vinnslu talnaefnis úr ársreikningum og uppsetningu á töflum en Sigurður Á. Snævarr fór með ritstjórn bókarinnar.