Akranes ætlar að verða fyrsta íþróttasveitarfélagið

Fulltrúar Akraneskaupstaðar hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að bærinn verði fyrsta íþróttasveitarfélagið á landinu.

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, og Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ.

Með yfirlýsingunni lýsir Akranes yfir vilja til að halda áfram að byggja ofan á þær styrku stoðir sem fyrir eru í bæjarfélaginu og setja íþróttir barna- og ungmenna og uppbyggingu þeirra ásamt afreksíþróttum á oddinn. Á undanförnum árum hefur sveitarfélagið byggt fjölmörg ný íþróttamannvirki og eru uppi áform um enn frekari uppbyggingu og endurbætur.

Akranes er frumkvöðlasveitarfélag í innleiðingu á lögum um farsæld barna og inn í þá vinnu tengir sveitarfélagið íþróttir og er viljayfirlýsingin ákveðið framhald á þeirri vinnu. Nýr starfsmaður mun taka til starfa 1.desember og mun hann vinna að nýju verkefni sem heitir Farsæl frístund og byggir á því að öll börn með stuðning fá líka þann stuðning sem þau þurfa í frístundir með áherslu á hreyfingu.

Viljayfirlýsingin rímar við það sem kom fram á ráðstefnunni Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi sem mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga, stóð fyrir þann 20. nóvember. Á ráðstefnunni voru kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Vel á fjórða hundrað manns sóttu ráðstefnuna og komu ríflega tvö þúsund inn á streymið.

Á ráðstefnunni var fjallað var um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Þá kom þjóðþekkt afreksíþróttafólk sínum áherslum á framfæri og fjallað var um aðkomu sveitarfélaga og atvinnulífsins. Jafna þarf tækifæri til íþróttaiðkunar á landsbyggðinni og fór Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness og meðlimur starfshóps um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks, yfir íþróttasveitarfélög og nýjar svæðisskrifstofur og íþróttasvæði með samlegð við önnur verkefni ríkis og sveitarfélaga, til að mynda farsæld og lýðheilsu.

Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri sambandsins tók þátt í hópavinnu á ráðstefnunni.