Fréttir: feb 2019
Umsögn um fyrirhugaðar breytingar á lögum um opinber innkaup
Samband íslenskra sveitarfélaga leggur til að heimild til keðjuábyrgðar verði gerð að skyldu í lögum um opinber innkaup. Þá telur sambandið mikilvægt að hugað verði að stöðu bæði ríkis og sveitarfélaga, fari svo að Ríkiskaup verði lögð niður.
Drög að reglum um sérkröfur til skólabifreiða
Samband íslenskra sveitarfélaga styður ekki drög að reglum um sérkröfur til skólabifreiða nái fram að ganga óbreytt, aðallega fyrir þá sök að umræddar reglur hafa ekki verið kostnaðarmetnar, með tilliti til mögulegra áhrifa þeirra á fjárhag sveitarfélaga. Þá er það álit sambandsins að reglugerðardrögin séu í ósamræmi við gildandi reglugerð um skólaakstur.
Sameiginlegt örútboð á ritföngum fyrir grunnskóla
Ríkiskaup undirbúa nú sameiginlegt örútboð á ritföngum fyrir grunnskóla sveitarfélaganna, eins og farið hefur verið í undanfarin ár. Sveitarfélögum, sem ætla að taka þátt í útboðinu, er bent á að hafa samband við Grétar Erlingssons, verkefnastjóra hjá Ríkiskaupum á gretar@rikiskaup.is fyrir 4. mars nk.
Evrópsku stjórnsýsluverðlaunin EPSA 2019
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til evrópsku stjórnsýsluverðlaunanna European Public Sector Award, EPSA 2019, en þessi eftirsóttu verðlaun eru veitt annað hvert ár fyrir framúrskarandi nýjungar í opinberri þjónustu og stefnumótun. Yfirskrift verðlaunanna er að þessu sinni: nýjar lausnir við flóknum viðfangsefnum – opinber þjónusta við allra hæfi, sjálfbær og framsýn; New Solutions to complex challanges – A public sector citizen-centric, sustainable and fit for the future.
Er rétt að ríkið skattleggi almannaþjónustu?
Eitt af baráttumálum Sambands íslenskra sveitarfélaga er að ríkið komi að því með sveitarfélögunum að ljúka uppbyggingu á fráveitukerfum landsins. Sú umræða er ekki ný af nálinni og raunar voru sett lög árið 1995 um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af fráveituframkvæmdum sveitarfélaga til ársins 2008. Náðust fram miklar umbætur um land allt á gildistíma lagannna. Óumdeilt er að verkefninu var hvergi nærri lokið enda voru aðstæður sveitarfélaga til þess að ráðast í stórar fjárfestingar á þessum tíma misjafnar.
Innleiðing starfsmats hjá BHM
Framkvæmdanefnd starfsmats hefur samþykkt mat á þeim störfum aðildarfélaga innan BHM sem sömdu um starfsmat í síðustu kjarasamningum. Samningsaðilar gera ráð fyrir að fyrsta útborgun launa samkvæmt starfsmati verði 1. apríl nk.
Fundað um fyrirhugaðar breytingar á lögum um loftslagsmál
Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og umhverfisráðuneytis áttu í gær fund vegna þeirra athugasemda sem sambandið hefur gert við fyrirhugað frumvarp um breytingar á lögum um loftslagsmál. Voru fundarmenn sammála um að sveitarstjórnarstigið gegni stóru hlutverki á sviði aðgerða í loftslagsmálum og kom fram vilji af hálfu ráðuneytisins til þess að skoða mögulegar breytingar með hliðsjón af umsögn sambandsins um drög að frumvarpinu.
Upptökur af umræðu- og upplýsingafundi um NPA
Samband íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytið stóðu í gær fyrir umræðu- og upplýsingafundi um innleiðingu nýrra og breyttra laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Var á fundinum horft sérstaklega til notendastýrðrar persónulegar aðstoðar, NPA, og gildistöku reglugerðar nr. 1250/2018, sem gefin var út skömmu fyrir síðustu áramót.
Úthlutanir vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt
Þau 22 sveitarfélög sem tóku þátt í forvali Fjarskiptasjóðs vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt hafa fengið tilboð um samtals 450 milljón króna styrki vegna ársins 2019. Jafnframt eiga 14 sveitarfélög nú kost á sérstökum byggðastyrk, samtals 150 milljónum króna. Viðkomandi sveitarfélög fá send tilboðsgögn frá sjóðnum í dag. Lokafrestur til að þiggja tilboð sjóðsins er til kl. 12:00, föstudaginn 8. mars nk.
Aðgerðir ESB gegn hatursorðræðu skila árangri
Aðgerðir Evrópusambandsins gegn hatursorðræðu á netinu hafa í samstarfi við alþjóðlegu vefrisana skilað árangri. Frekari árangur er talinn háður því að fyrirtækin bæti upplýsingagjöf til notenda.
Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga 2019-2022
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur unnið samantekt um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga. Um er að ræða fjárhagsáætlanir 71 sveitarfélags af 72, en í þessum sveitarfélögum búa nærfellt allir íbúar landsins. Samantektin tekur eingöngu til A-hluta sveitarfélaga og snýr því að þeirri starfsemi sem er að hluta eða öllu leyti fjármögnuð af skatttekjum.
Kynningarfundur um heimsmarkmiðin og sveitarfélögin í beinni
Streymt verður beint frá kynningarfundinum um heimsmarkmiðin og sveitarfélögin, á vef sambandsins. Fundurinn fer fram á Grand hóteli föstudaginn 15. febrúar kl. 13:00 til 16:30.
Eitt leiðarkerfi fyrir allar almenningssamgöngur
Lögð hafa verið fram til kynningar drög að fyrstu heildarstefnu ríkisins í almenningssamgöngum. Markmið stefnunnar er að stuðla að umhverfisvænni, öruggari og þjóðhagslega hagkvæmari umferð um land allt samfara aukinni notkun almenningssamganga. Þá eru almenningssamgöngur skilgreindar út frá einu og samþættu leiðarkerfi fyrir flug, ferjur og almenningsvagna á öllu landinu. .
Starf félagsþjónustufulltrúa sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir stöðu sérfræðings í málefnum félagsþjónustu sveitarfélaga á lögfræði- og velferðarsviði. Félagsþjónustufulltrúi starfar ásamt öðrum sérfræðingum sviðsins að margþættum og síbreytilegum verkefnum, sem tengjast félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum velferðarmálum sem varða starfsemi sveitarfélaga.
Mikill áhugi hjá sænskum sveitarfélögum á heimsmarkmiðunum
Glokala Sverige – Agenda 2030 er yfirskrift þriggja ára samstarfs- og fræðsluverkefnis um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem SKL, samtök sveitarfélaga og svæða, standa fyrir í samstarfi við Félag Samneinuðu þjóðanna í Svíþjóð. Heimsmarkmiðin hafa áunnið sér sess innan vébanda samtakanna sem hagnýtt tæki til innleiðingar á aðferðum sjálfbærrar þróunar.
Skora á ríkið að hefja viðræður vegna hjúkrunarheimilanna
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu skora á Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðuneytið að hefja nú þegar markvissar og raunhæfar viðræður við samtökin og Samband íslenskra sveitarfélaga um þjónustu hjúkrunarheimila, sem og þjónustu í dagdvalarrýmum. Ef fram heldur sem horfir verður þjónustuskerðing óhjákvæmileg vegna þeirrar rýrnunar sem átt hefur sér stað á verðgildi fjárveitinga samfara kostnaðarhækkunum undanfarinna missera.
Hagvöxtur landshluta 2008-2016
Hagvöxtur var 15-18% í þeim landshlutum sem hann var mestur á árunum 2016-2018 og talsvert yfir landsmeðaltali sem nam 10% á þessu árabili. Þetta er að meðal þess sem kemur fram í Hagvöxtur landshluta 2008-2016 sem kom nýlega út. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands í samvinnu við þróunarsvið Byggðastofnunar.
Seltjarnarnesbær hlýtur Orðsporið 2019
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, tók í dag við Orðsporinu 2019 – hvatningarverðlaunum sem afhent eru á Degi leikskólans. Verðlaunin voru veitt því sveitarfélagi sem þykir hafa skarað fram úr við að bæta starfsaðstæður og starfskjör leikskólakennara umfram kjarasamning.