Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum

Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum voru stofnuð 20. nóvember 1996 og voru stofnendur 37 sveitarfélög.

Tilgangur samtakanna er:

  • að vinna að lækkun orkukostnaðar til húshitunar á „köldum svæðum“
  • að stuðla að (frekari) jarðhitaleit.
  • að afla og dreifa upplýsingum um orkumál til aðildarsveitarfélaga
  • að stuðla að aukinni þekkingu almennings á leiðum til orkusparnaðar.

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, er formaður samtakanna. Aðrir í stjórn eru Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, og Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Varamenn í stjórn eru:

  • Ólafur Hr. Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði
  • Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð
  • Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grundarfjarðarbæ

Samtökin hafa aðstöðu á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga og er Magnús Karel Hannesson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, starfsmaður þeirra.

Fundargerð ársfundar 2009.


Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica