Veitumál
Vatnsveitur
Sveitarfélögum er skylt að reka vatnsveitu í þéttbýli samkvæmt lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004, en utan þéttbýlis er þeim það heimilt. Margvíslegan fróðleik um rekstur vatnsveitna má finna á heimasíðu Samorku. Vefsíðan www.vatnid.is hefur einnig að geyma margvíslegan fróðleik um vatnsöflun og gæði vatns. Einnig er ítarleg umfjöllun um vatnsgæði á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Fráveitur
Sveitarfélög bera ábyrgð á uppbyggingu fráveitna samkvæmt lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009. Í þéttbýli skal sveitarfélag koma á fót og starfrækja fráveitu en utan þess skal sveitarfélag sjá til þess að skólpi sé safnað á kerfisbundinn hátt með safnkerfi, stofnlögnum og sameiginlegu hreinsivirki þar sem þess er þörf, með því að setja kröfur í deiliskipulagi.
Hitaveitur
Hitaveitur í landinu sjá um 90% landsmanna fyrir heitu vatni til húshitunar. Um flestar stærri hitaveitur gilda sérstakar reglugerðir. Íbúar þeirra svæða sem ekki hafa aðgang að jarðhita og kynda hús sín með raforku eða olíu njóta niðurgreiðslna á húshitun. Almenn umsýsla með niðurgreiðslum til húshitunar er í höndum Orkustofnunar sem veitir frekari upplýsingar.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum voru stofnuð 20. nóvember 1996 og voru stofnendur 37 sveitarfélög.
Tilgangur samtakanna er:
- að vinna að lækkun orkukostnaðar til húshitunar á „köldum svæðum“
- að stuðla að (frekari) jarðhitaleit.
- að afla og dreifa upplýsingum um orkumál til aðildarsveitarfélaga
- að stuðla að aukinni þekkingu almennings á leiðum til orkusparnaðar.
Kristinn Jónasson, bæjarstóri í Snæfellsbæ, er formaður samtakanna. Aðrir í stjórn eru Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, og Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samtökin hafa aðstöðu á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga og er Magnús Karel Hannesson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, starfsmaður þeirra.
Vefsíða samtakanna er á slóðinni www.ssks.is
