Loftslags- og loftgæðamál
Loftgæði í nærumhverfi
Gott andrúmsloft er með mikilvægustu lífsgæðum enda erfitt að vera án þess nema í mjög stuttan tíma. Í heild séð eru loftgæðin á Íslandi mjög góð, en í þéttbýli, sérstaklega í Reykjavík hefur við vissar aðstæður myndast óviðunandi ástand. Meginuppspretta loftmengunar er umferð farartækja, en uppblástur frá opnum svæðum er talsverður þáttur í myndun svifryks. Svifryk og köfnunarefnisdíoxíð úr bruna eldsneytis eru helstu loftmengunarefni. Á síðustu árum hefur orðið vart við lykt af brennisteinsvetni sem berst frá jarðvarma orkuverum, á höfuðborgarsvæðinu og sveitarfélögum á Suðurlandi.
Sveitarfélög, með Reykjavík í fararbroddi, hafa fylgst með loftgæðum í tuttugu ár og með ýmsum aðgerðum á síðustu árum geta haldið loftmengun í skefjum þrátt fyrir mikla fjölgun farartækja á síðustu tíu árum. Á heimasíðu Umhverfis- og samgöngusviðs má fylgjast með loftgæðum í borginni og á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis með loftgæðum á starfssvæði heilbrigðiseftirlits.
Upplýsingar um loftgæði má einnig finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Loftslagsbreytingar
Sveitarfélög eru í vaxandi mæli upptekin af neikvæðum áhrifum loftlagsbreytinga, ekki síður en ríki heimsins. Sveitarfélög hafa þrýst á um aukna aðkomu að heimsráðstefnum þar sem ákvarðanir eru teknar sem varða sveitarfélög miklu. Í mörgum löndum hafa sveitarfélög eða samtök þeirra mótað stefnu í því að bregðast við neikvæðum áhrifum loftlagsbreytingar, t.d. samtök sveitarfélaga í Svíþjóð.
Á íslandi hefur Reykjavíkurborg mótað sér stefnu í loftslagsmálum, almenn vitneskja um loftsbreytingar er að aukast og búast má við fleiri sveitarfélög taki ákvarðanir um stefnu í loftslagsmálum.
