Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum voru stofnuð 20. nóvember 1996 og voru stofnendur 37 sveitarfélög. Vefsíða samtakanna er á slóðinni www.ssks.is
Tilgangur samtakanna er:
- að vinna að lækkun orkukostnaðar til húshitunar á „köldum svæðum“
- að stuðla að (frekari) jarðhitaleit.
- að afla og dreifa upplýsingum um orkumál til aðildarsveitarfélaga
- að stuðla að aukinni þekkingu almennings á leiðum til orkusparnaðar.
Kristinn Jónasson, bæjarstóri í Snæfellsbæ, er formaður samtakanna.
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
Samtökin hafa aðstöðu á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga og er Magnús Karel Hannesson, sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, starfsmaður þeirra.
