Norðurlandaráðstefna LÍSU samtakanna
LÍSU samtökin í samvinnu við Fasteignaskrá Íslands halda ráðstefnu á hótel KEA á Akureyri miðvikudaginn 26. maí 2010 um skráningu jarða og lóða og gagna sem liggja þar að baki. Skráning jarða og landa er í höndum margra aðila og mikil þörf er á skýru verkferli, samræmdum vinnubrögðum og öruggum upplýsingum um hlutverk aðila í þessu samhengi. Á ráðstefnunni verður skráning lands skoðuð frá ólíkum sjónarhornum, skráningaraðilanna og notendanna og þarfir þeirra skilgreindar. Í lok fundar verður boðið uppá umræðukaffi þar sem þátttakendur koma á framfæri sínum tillögum um leiðir til úrbóta.
Dagskrá
| Fyrirtæki; flytjandi | Umræðuefni | |
| 10.00-10.05 | LÍSU samtökin; Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir | Opnun fundar |
| 10.05-10.35 | Háskólinn í Reykjavík; Guðrún Gauksdóttir | Lögfræðilegt álit varðandi jarðaskráningu |
| 10.35-11.05 | Fasteignaskrá Íslands; Tryggvi Már Ingvarsson |
Kynning á tillögu að nýju vinnuferli við skráningu lands í fasteignaskrá. Samræming ganga á landsvísu og tenging þinglýstra skjala |
| 11.05-11.25 | Uppsveitir Árnessýslu og Flóahreppur; Pétur Ingi Haraldsson |
Hver er þörf sveitarf fyrir samræmingu gagna? Hvert er ástand gagna og söguskráning? Hver er lagaleg skyda sveitarfélaga varðandi land/lóðamörk? |
| 11.25-11.45 | Skipulagsstofnun; Hafdís Hafliðadóttir |
Hver er aðkoma skipulagsstofnunar að skráningu jarða? |
| 11.45-12.20 | Hádegismatur á Hótel KEA | |
| 12.20-12.40 | Búnaðarsamtök Vesturlands og Landlínur; Sigríður Jóhannesdóttir og Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir | Hnitsetning landamerkja. Átaksverkefni Búnaðarsamtaka Vesturlands og Landlína |
| 12.40-13.00 | BÚGARÐUR, Ráðgjafarþjónusta á Norðausturlandi; Guðmundur Gunnarsson |
Reynsla af innmælingu landamerkja og lóð |
| 13.00-13.20 | Verkfræðistofan Stoð; Sólveig Olga Sigurðardóttir |
Hverjar eru þarfir fyrirtækja sem notendur gagna? |
| 13.20-13.40 | Landmælingar Íslands; Þórarinn Sigurðsson |
Landshnitakerfi |
| 13.40-14.10 | Umræðukaffi | Ráðstefnugestir taka þátt í umræðum um hvaða aðgerða þarf að grípa til. Kaffi og meðlæti á borðum |
| 14:10-14.25 | Helstu niðurstöður |
Verð: LÍSU félagar: kr. 5000 Aðrir: kr. 6000
Skráning: lisa@skipulag.is til 22. maí

