Brunavarnir
Slökkvilið sveitarfélaga hafa margvíslegu þjónustuhlutverki að gegna við almenning og fyrirtæki. Þjónustan er að mestu leyti skilgreind í lögum og reglugerðum en er þó víðtækari en svo. Auk slökkvistarfa og forvarna er um að ræða:
- Viðbrögð við umhverfismengun
- Verðmætabjörgun, meðal annars vegna vatnsleka
- Björgun vegna umferðaróhappa
- Almannavarnir
- Sjóköfun
- Björgun utan alfaraleiða
- Tilfallandi aðstoð við almenning
- Mörg slökkvilið annast einnig sjúkraflutninga á sínu starfssvæði
Starfsmenn slökkviliða gegna því mörgum ólíkum störfum sem krefjast fjölbreyttrar þjálfunar og tækjabúnaðar.
