Stjórnsýsla sveitarfélaga
  • SIS_Stjornsysla_sveitarfel_190x160

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti fer með málefni sveitarfélaga. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 skal ráðuneytið hafa eftirlit með því að sveitarstjórnir gegni skyldum sínum samkvæmt þeim lögum og öðrum löglegum fyrirmælum. Einnig skal ráðuneytið úrskurða um ýmis vafaatriði sem upp kunna að koma við framkvæmd sveitarstjórnarmálefna en það skerðir þó ekki rétt aðila til þess að höfða mál fyrir dómstólum.

Á grundvelli sveitarstjórnarlaga úrskurðar ráðuneytið meðal annars um hvort sveitarstjórnir haldi fundi sína í samræmi við lög, svo sem varðandi fundarboðun, auglýsingu funda, hæfi einstakra sveitarstjórnarmanna o.fl. Einnig hefur ráðuneytið úrskurðarvald varðandi sveitarstjórnarkosningar og atkvæðagreiðslur um sameiningu sveitarfélaga.



Verkefni sveitarfélaga

Fréttir - stjórnsýsla

SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

10.2.2012 : Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins


Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem innanríkisráðuneytið heldur í dag í samvinnu við Háskólann á Akureyri verður sent út á netinu. Dagskráin stendur frá kl. 11 til 15.30.

Lesa meira
 
mappa

3.1.2012 : Sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 tóku gildi um áramót

Ný sveitarstjórnarlög og tóku þau gildi 1. janúar 2012. Verulegum áfanga er náð með samþykkt laganna en í þeim felst heildarendurskoðun á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998. Lögin fela í sér veigamiklar breytingar á ýmsum atriðum eldri laga. Hér á eftir verður fjallað um helstu áherslubreytingar í lögunum.

Lesa meira
 
Nemendur

20.12.2011 : Nýtt nám fyrir stjórnendur hjá sveitarfélögum

Háskólinn á Bifröst efnir til náms fyrir stjórnendur innan sveitarfélaga sem miðar að sterkari stjórnsýslu. Markmiðið með náminu er að auka þekkingu, hæfni og leikni stjórnenda innan sveitarfélaga til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli.

Lesa meira
 
undirskrift-077

19.12.2011 : Aðgerðir í þágu langtímaatvinnulausra

Þann 16. desember sl. undirritaði Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, yfirlýsingu um eflingu atvinnulífs undir yfirskriftinni „TIL VINNU“. Við undirritunina gat Halldór þess að aðgerðirnar ættu að gagnast mörgum við að komast af atvinnuleysisskrá en í eðli sínu væru aðgerðirnar tímabundnar og því lagði hann þunga áhersla að hjól atvinnulífsins fari að snúast á eðlilegum hraða þannig að fólk geti fengið atvinnu til lengri tíma litið hjá fyrirtækjum landsins.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

6.12.2011 : Sameining Bæjarhrepps og Húnaþings vestra samþykkt

Sameining sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra var samþykkt af meirihluta þeirra sem kusu í báðum sveitarfélögunum. Kosið var um sameiningu sveitarfélaganna síðastliðinn laugardag. Lesa meira
 
pusl

29.11.2011 : Kosið um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra á laugardag

Kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra fara fram laugardaginn 3. desember næstkomandi. Kjörstaðir verða bæði á Hvammstanga og á Borðeyri. Lesa meira
 
Fyrirspurn

11.10.2011 : Kröfur verktaka um endurskoðun á verksamningnum vegna vísitölubreytinga á fyrri hluta árs 2009

Eins og mörgum sveitarfélögum mun kunnugt hafa málaferli spunnist af breytingum sem Alþingi samþykkti þann 1. mars 2009 á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Í framhaldi af lækkuninni fengu allmörg sveitarfélög kröfur frá verktökum um að verksamningar, sem gerðir voru fyrir lagabreytinguna og eru tengdir byggingarvísitölu, yrðu verðbættir þannig að horft verði framhjá umræddri 3,1% lækkun.

Lesa meira
 
Althingi_300x300p

19.9.2011 : Ný sveitarstjórnarlög samþykkt á Alþingi

Eins og sveitarstjórnarmönnum er kunnugt samþykkti Alþingi 17. september sl. ný sveitarstjórnarlög. Verulegum áfanga er náð með samþykkt nýrra sveitarstjórnarlaga. Mikið verk er þó framundan, m.a. um frekari útfærslu og innleiðingu fjármálareglna með gerð aðlögunaráætlana til allt að tíu ára.

Lesa meira
 
Althingi_300x300p

26.5.2011 : Umsagnir um frumvarp til sveitarstjórnarlaga og ráðstafanir í ríkisfjármálum

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent frá sér umsögn um frumvarp til sveitarstjórnarlaga og minnisblað um áhrif frumvarps til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum á sveitarfélög.

Lesa meira
 
SIS_Lydraedi_mannrettindi_760x640

23.5.2011 : Námskeiðahaldi lokið - námsefni komið á vefinn

Frá því síðasta haust hefur Samband íslenskra sveitarfélaga haldið úti námskeiðum fyrir kjörna sveitarstjórnarmenn, starfsmenn sveitarfélaga og nefndamenn um hin ýmsu verkefni er varða stjórnun sveitarfélaga. Alls var boðið uppá fjögur námskeið sem haldin voru víðs vegar um land í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga.

Lesa meira
 
Nyskopun_Ljosapera

20.5.2011 : Fundur um opinber innkaup til nýsköpunar

Rannís og Samtök iðnaðarins boða til opins fundar um möguleika til að nýta opinber innkaup sem tæki til að örva nýsköpun í samfélaginu. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu, miðvikudaginn 25. maí kl. 13:30-17.

Lesa meira
 
IMG_3368

29.4.2011 : Skýrsla samráðshóps um húsnæðisstefnu

Velferðarráðuneytið hefur birt skýrslu samráðshóps um húsnæðisstefnu sem skipaður var í nóvember 2010. Í hópnum áttu m.a. sæti fulltrúar sem tilnefndir voru af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg. Í skýrslunni er m.a. lagt til að hlutverk ríkis og sveitarfélaga í húsnæðismálum verði skilgreint að nýju og að vaxta- og húsaleigubótakerfin verði sameinuð í eitt kerfi sem nefnist húsnæðisbætur, með aðlögunartíma sem ógnar ekki fjárhagsáætlunum heimila.

Lesa meira
 
SIS_Lydraedi_mannrettindi_760x640

18.4.2011 : 900 sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur

Velferðaráðuneytið og Vinnumálastofnuna standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga,  fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.  Um 900 störf verða auglýst í sérstöku auglýsingablaði sem dreift var helgina 16.-17. apríl sl.

Lesa meira
 
SIS_Skolamal_760x640

29.3.2011 : Könnun á fjárframlögum sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka

Þann 7. febrúar árið 2011 sendi Samband íslenskra sveitarfélaga út spurningalista til sveitarfélaganna þar sem óskað var upplýsinga um framlög þeirra til stjórnmálasamtaka. Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að mikill munur er á greiðslum sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka.

Lesa meira
 
Landsþingsfulltrúar 2011

25.3.2011 : Stefnumótun sambandsins rædd á XXV. landsþingi

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga gagnrýndi menntamálaráðherra í setningarávarpi sínu á 25. landsþingi sambandsins sem hófst á Hótel Nordica í morgun. Í ávarpi sínu ræddi Halldór m.a. um samræmdar hagræðingaraðgerðir í skólamálum sem lagðar voru fyrir ráðherrann og áttu að skila sveitarfélögunum ríflega eins milljarðs króna sparnaði. Engin af þeim tillögum sem sambandið lagði fyrir hefur hlotið brautargengi innan ráðuneytisins.

Lesa meira
 
Ungt-folk

1.3.2011 : Átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur næsta sumar með líkum hætti og gera var sl. sumar. Áætlað er að verja allt að 370 milljónum króna til verkefnisins. Vinnumálastofnun mun stýra átakinu sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

3.1.2011 : Drög að frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga til umsagnar

Starfshópur um endurskoðun sveitarstjórnarlaga hefur skilað til ráðherra sveitarstjórnarmála drögum að frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga. Drögin eru nú til umsagnar hjá ráðuneytinu og er gefinn tími til 23. janúar að skila umsögnum.

Lesa meira
 
kertasnikir

21.12.2010 : Jólakveðja

Jólakveðja stjórnar og starfsfólks Sambands íslenskra sveitarfélaga er send út í rafrænu formi að þessu sinni. Smelltu hér til að sjá kveðjuna.

Lesa meira
 
Uppbodshamar

5.11.2010 : Eru sveitarfélögin óþolinmóðir kröfuhafar?

Í umræðu undanfarinna vikna um nauðungarsölur á fasteignum hefur því verið haldið fram að ýmsir opinberir aðilar sýni litla þolinmæði í innheimtu krafna hjá þeim stóra hópi fólks sem á í greiðsluerfiðleikum vegna bankahrunsins. Þessi gagnrýni beinist m.a. að sveitarfélögum en upplýsingar sem nýlega hafa komið fram á Alþingi sýna að sveitarfélög eru mun sjaldnar uppboðsbeiðendur en aðrir þeir aðilar sem verið hafa til umræðu.

Lesa meira
 
Eignarhaldsfelag-BI

19.10.2010 : EBÍ greiddi 300 milljónir króna í ágóðahlut til aðildarsveitarfélaga 15. október

Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands greiddi þann 15. október  samtals 300 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar. Greiðslan rennur til þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum. EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni.  Með framlagi þessa árs hefur félagið samtals greitt aðildarsveitarfélögunum  rúma 3,6 milljarða króna. 

Lesa meira
 
SIS_Felagsthjonusta_190x160

5.10.2010 : Ráðstefna um skipulag áfallahjálpar

Samband íslenskra sveitarfélaga heldur í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landlækni, Landspítalann, Rauða kross Íslands og þjóðkirkjuna ráðstefnu um skipulag áfallahjálpar á Íslandi. Ráðstefnan verður haldin í Grensáskirkju og hefst kl. 12.30.

Lesa meira
 
Rett_Blatt_Stort_a_vefinn

30.9.2010 : Landsþing haldið á Akureyri

XXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fer nú fram í Menningarmiðstöðinni í Hofi á Akureyri. Í setningarræðu sinni sagði Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, m.a.: "Á þessu landsþingi eru stór mál lögð fyrir þingið til skoðunar og ákvarðanatöku. Þetta eru mál á borð við breytt skipulag í kjaramálum með tillögu um að kjósa ekki launanefnd lengur beint á landsþingi. Samstarf og samstaða sveitarfélaga í kjaramálum er lykilatriði og verðum við að halda þeirri órofa samstöðu án tillits til þess hvort við gerum skipulagsbreytingar varðandi launanefndina."

Lesa meira
 
Nam

10.8.2010 : Betri tenging og aukin samþætting milli skólastiga

Kjarasvið hefur gefið út skýrslu með niðurstöðum úr könnun á framkvæmd samreksturs skóla. Könnunin var gerð í samvinnu við Félag leikskólakennara og Skólastjórafélag Íslands. Samkvæmt upplýsingum sveitarfélaga er um að ræða 13 skóla með leik- og grunnskólastig í samrekstri, þrjá skóla með grunn- og tónlistarskóla í samrekstri og átta skóla þar sem öll þrjú stigin eru rekin saman undir stjórn eins skólastjóra.

Lesa meira
 
Flosi1024

25.6.2010 : Regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði breytt í tveimur áföngum

Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu.

Lesa meira
 
mappa

25.6.2010 : Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga upplýsir sveitarstjórnarmenn um verkefni sín

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent öllum sveitarstjórnarmönnum bréf þar sem kynnt eru helstu verkefni nefndarinnar og samskipti við sveitarstjórnir. Alls fá rúmlega 500 sveitarstjórnarmenn bréfið og er tilgangur þess að greiða fyrir góðum samskiptum og að upplýsingar berist fljótt og vel á milli aðila.

Lesa meira
 
reykholahreppur

24.6.2010 : Kosningar endurteknar í Reykhólahreppi

Úrskurðarnefnd sem skipuð var til þess að fjalla um kærumál vegna kosninganna í Reykhólahreppi þann 29. maí hefur komist að þeirri niðurstöðu að þær skuli ógiltar og kosið verði til hreppsnefndar á nýjan leik. Fráfarandi hreppsnefnd mun starfa uns nýjar kosningar hafa farið fram.

Lesa meira
 
SIS_Kjara_starfsmannamal_760x640

14.6.2010 : Kjörtímabil nýrra sveitarstjórna tók gildi 13. júní 2010

Sunnudaginn 13. júní tóku nýkjörnar sveitarstjórnir við störfum og þá lauk jafnframt kjörtímabili sveitarstjórna sem kjörnar voru í sveitarstjórnarkosningunum 27. maí 2006. Samband íslenskra sveitarfélaga býður nýju sveitarstjórnir í sveitarfélögunum 76 velkomnar til starfa og væntir þess að samstarf við þær verði farsælt og gott.

Lesa meira
 
Ungt-folk

11.6.2010 : Áskorun til sveitarfélaga um að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar

Velferðarvaktin hefur sent frá sér áskorun til sveitarfélaga þar sem því er beint til sveitarfélaga að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar. Að mati velferðarvaktarinnar eru ungmenni í atvinnuleit, 17 og 18 ára, í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði, ekki síst vegna takmarkaðrar starfsreynslu.   Lesa meira
 
pusl

4.6.2010 : Úthlutun sæta í nefndir og ráð samkvæmt d‘Hondts reglu

Starfsmenn sambandsins hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir að loknum sveitarstjórnarkosningum um úthlutun sæta í nefndir og ráð en samkvæmt 40. gr. sveitarstjórnarlaga gildir svokölluð d´Hondts regla um skiptingu þessara sæta þegar fram fer listakosning í nefndir.

Lesa meira
 
althingi-mynd

30.4.2010 : Níu sveitarfélög til skoðunar hjá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Í svari Kristjáns L. Möllers, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, við fyrirspurn Þórs Saari um erfiða fjárhagsstöðu sveitarfélaga kemur fram að alls hafa 10 sveitarfélög verið til sérstakrar skoðunar af hálfu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.

Lesa meira
 
althingi-mynd

30.4.2010 : Alþingi samþykkir lög um fjárhagsskil sveitarfélaga

 

Alþingi samþykkti þriðjudaginn 27. apríl breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 sem kveða á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem mæli fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi sínu og reikningsskilum.

Lesa meira
 

23.4.2010 : Ársreikningur Fljótsdalshéraðs lagður fram

Fljotsdalsherad

Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2009 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 21. apríl 2010. Samkvæmt sveitarstjórnalögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður seinni umræðan í bæjarstjórn miðvikudaginn 5. maí næstkomandi.

Lesa meira
 

Fleiri fréttir




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica