Fréttir - stjórnsýsla
  • Ungt-folk

11.6.2010

Áskorun til sveitarfélaga um að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar

Velferðarvaktin hefur sent frá sér áskorun til sveitarfélaga þar sem því er beint til sveitarfélaga að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar.  Velferðarvaktin hefur beint sjónum sínum sérstaklega að aðstæðum barna og ungmenna í því erfiða efnahagsástandi sem nú ríkir.  Rúmlega þrjú þúsund einstaklingar á aldrinum 16 til 24 ára eru skráðir atvinnulausir eða um 19% allra sem eru í atvinnuleit, þar af eru um 600 á aldrinum 15 til 19 ára. Atvinnuleysi er nú að meðaltali 9% á öllu landinu, langtímaatvinnulausum fjölgar stöðugt og eru þeir nú um 56% þeirra sem eru í atvinnuleit.  Í þessum tölum birtist ekki fjöldi þeirra einstaklinga sem ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum en þar á meðal eru ungmenni sem hafa litla starfsreynslu

Ungmenni í atvinnuleit, 17 og 18 ára, eru í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði, ekki síst vegna takmarkaðrar starfsreynslu.  Það er mikilvægt að unga fólk fái tækifæri til að afla sér reynslu á vinnumarkaði, hafa uppbyggileg verkefni og tekjur. Velferðarvaktin hefur fengið ábendingar um að ungt fólk sem ekki fékk vinnu í fyrrasumar sé í sérstakri áhættu gagnvart því að fá ekki heldur vinnu nú í sumar. Tilhneiging sé til að ráða ungt fólk sem stóð sig vel í starfi sumarið áður aftur til starfa sem geti leitt til þess ákveðinn hópur ungs fólks fái engin atvinnutækifæri og lendi þannig utan vinnumarkaðar, hugsanlega til lengri tíma, sem hafi varanlegar afleiðingar. Þessi hópur gæti orðið að týndu kynslóðinni sem Finnar hafa greint frá í kjölfarið á finnsku kreppunni á síðasta áratug.

Á fundi velferðarvaktarinnar 18. maí sl. var samþykkt að beina því til sveitarfélaganna að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar og láta þau sem ekki fengu vinnu í fyrrasumar fá forgang að störfum.


Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica