Fréttir - stjórnsýsla

SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

10.2.2012 : Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins


Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem innanríkisráðuneytið heldur í dag í samvinnu við Háskólann á Akureyri verður sent út á netinu. Dagskráin stendur frá kl. 11 til 15.30.

Lesa meira
 
mappa

3.1.2012 : Sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 tóku gildi um áramót

Ný sveitarstjórnarlög og tóku þau gildi 1. janúar 2012. Verulegum áfanga er náð með samþykkt laganna en í þeim felst heildarendurskoðun á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998. Lögin fela í sér veigamiklar breytingar á ýmsum atriðum eldri laga. Hér á eftir verður fjallað um helstu áherslubreytingar í lögunum.

Lesa meira
 
Nemendur

20.12.2011 : Nýtt nám fyrir stjórnendur hjá sveitarfélögum

Háskólinn á Bifröst efnir til náms fyrir stjórnendur innan sveitarfélaga sem miðar að sterkari stjórnsýslu. Markmiðið með náminu er að auka þekkingu, hæfni og leikni stjórnenda innan sveitarfélaga til þess að takast á við krefjandi starfsumhverfi og auka samvinnu þeirra í milli.

Lesa meira
 
undirskrift-077

19.12.2011 : Aðgerðir í þágu langtímaatvinnulausra

Þann 16. desember sl. undirritaði Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, yfirlýsingu um eflingu atvinnulífs undir yfirskriftinni „TIL VINNU“. Við undirritunina gat Halldór þess að aðgerðirnar ættu að gagnast mörgum við að komast af atvinnuleysisskrá en í eðli sínu væru aðgerðirnar tímabundnar og því lagði hann þunga áhersla að hjól atvinnulífsins fari að snúast á eðlilegum hraða þannig að fólk geti fengið atvinnu til lengri tíma litið hjá fyrirtækjum landsins.

Lesa meira
 
SIS_Stjornsysla_sveitarfel_760x640

6.12.2011 : Sameining Bæjarhrepps og Húnaþings vestra samþykkt

Sameining sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra var samþykkt af meirihluta þeirra sem kusu í báðum sveitarfélögunum. Kosið var um sameiningu sveitarfélaganna síðastliðinn laugardag. Lesa meira
 

Eldri fréttir


Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica