Skólamálastefna

Árið 1996 færðist allur rekstur grunnskólans yfir til sveitarfélaganna sem fyrir ráku leikskóla, og tónlistarskóla eftir atvikum. Sveitarfélögin hafa staðið að uppbyggingu grunnskólans með metnaðarfullum hætti eftir yfirfærsluna og er rekstur hans hlutfalslega stærsti kostnaðarliður hvers sveitarfélags.

Á fyrsta grunnskólaþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2004 töldu þingfulltrúar mikilvægt að sambandið yrði virkari stefnumótunar- og samræmingaraðili í grunnskólamálum og öflugri tengiliður við skólaskrifstofur í landinu. Leggja þyrfti grunn að sameiginlegum vettvangi innan sveitarstjórnarstigsins til að ræða málefni skóla og menntunar auk þess sem lagt var til að mótuð yrði sameiginleg stefnu um skólamál á vettvangi sambandsins auk þess sem hvert sveitarfélag mótaði eigin skólastefnu, sem ekki varð lögbundið verkefni fyrr en með nýjum skólalögum árið 2008.


Skólamálanefnd sambandsins, var sett á laggirnar árið 2005 á grundvelli tillagna þingsins, vann að mótun stefnu sambandsins í skólamálum í samstarfi við sveitarfélögin í landinu, fræðimenn á sviði skóla og menntunar og sérfræðinga sambandsins frá hausti 2006. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti stefnmörkunina í upphafi árs 2008

Í skólamálastefnu sambandsins er sjálfstæði sveitarfélaga til að stjórna eigin skólamálum lagt til grundvallar og henni skipt upp í fjóra megin þætti: Hlutverk; Leiðarljós; Almenn stefnumið; Eftirlit og gagnaöflun. Er stefnumörkuninni er fyrst og fremst ætlað að varpa ljósi á það hlutverk sem sambandið hefur gagnvart sveitarfélögum í þessum umfangsmikla málaflokki og hvernig það hyggst rækja það með sem skilvirkustum hætti. Samkvæmt lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga er eitt af meginhlutverkum sambandsins „að vera sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna í landinu og vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra og samstarfi". Þetta á við um skólamál jafnt og önnur verkefni sem sveitarfélögunum eru falin.

Unnið er að endurskoðun á skólamálastefnunni m.a. í ljósi nýrra laga um leik- og grunnskóla.



Senda grein

Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica