Stefnumótun
Á fyrsta skólaþingi sveitarfélaga, sem sambandið gekkst fyrir árið 2004, töldu þingfulltrúar mikilvægt að sambandið yrði virkari stefnumótunar- og samræmingaraðili í grunnskólamálum og öflugri tengiliður við skólaskrifstofur í landinu. Jafnframt var lagt til að mótuð yrði stefna um skólamál á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga auk þess sem hvert sveitarfélag mótaði eigin skólastefnu.
Árið 2008 samþykkti stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrstu skólamálastefnu sambandsins og unnið var að mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar fyrir grunnskólastarf með Félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands og ráðinn sérstakur verkefnisstjóri til þess að fylgja þeirri vinnu ásamt því að aðstoða sveitarfélög við gerð eigin skólastefnu.
- Skólamálastefna Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Verkefnisstjóri í skólamálum
- Framtíðarsýn fyrir skólastarfið til 2020
- Skólastefnur sveitarfélaga
- Skólastefna sveitarfélaga - handbók
- Leiðbeiningar um mótun skólastefnu
