Símenntunarsjóðir
Endurmenntunarsjóður grunnskóla
Markmið sjóðsins er að veita fé til endurmenntunar kennara, námsráðgjafa og stjórnenda grunnskólans. Samband íslenskra sveitarfélaga sér um umsýslu sjóðsins.
Námsleyfasjóður kennara og stjórnenda grunnskóla
Markmið sjóðsins er að trygga fjárhagslega afkomu kennara, námsráðgjafa og stjórnenda grunnskóla í námsleyfi.
Samband íslenskra sveitarfélaga sér um umsýslu sjóðsins.
Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ (Vonarsjóður)
Markmið sjóðsins er að styðja við sí- og endurmenntun kennara, námsráðgjafa og stjórnenda grunnskóla. Aðild að sjóðnum eiga kennarar, ráðgjafar og stjórnendur í grunnskólum, sem eru félagsmenn í FG eða SÍ. Kennarasamband Íslands sér um umsýslu sjóðsins.
Vísindasjóður Félags leikskólakennara
Markmið sjóðsins er að trygga fjárhagslegan grundvöll sí- og endurmenntunar fyrir leikskólakennara í tengslum við störf þeirra. Kennarasamband Íslands sér um umsýslu sjóðsins.
Starfsmenntunarsjóður tónlistarkennara
Markmið sjóðsins er að auka tækifæri félagsmanna til framhaldsmenntunar, endurmenntunar, rannsókna og þróunarstarfa. Auk þess að efla námsefnisgerð fyrir tónlistarskóla. Kennarasamband Íslands sér um umsýslu sjóðsins.
Sprotasjóður
Markmið sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í leik-, grunn- og framhalds-skólum í samræmi við reglugerð nr. 242/2009. Sjóðurinn kemur í stað Þróunarsjóðs leik- og grunnskóla. Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri sér um umsýslu sjóðsins.
Þróunarsjóður námsgagna
Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Mennta- og menningarmálaráðuneytið sér um umsýslu sjóðsins.
Nordplus
Markmið sjóðsins er að stuðla að þróun og samvinnu leik- grunn- og framhaldsskóla milli þátttökulandanna. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins veitir nánari upplýsingar um Nordplus, sjá www.ask.hi.is og www.nordplus.is.
Menntaáætlun ESB
Styrkt eru fjölþjóðleg samstarfsverkefni við skóla víðs vegar í Evrópu. Einnig er lögð áhersla á að auka möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar kennara og efla tungumálanám á öllum skólastigum. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins og Landsskrifstofa Leonardo á Íslandi veita nánari upplýsingar um styrki Menntaáætlunar ESB.
