Rannsóknir á viðhorfum og starfsháttum starfsfólks og tölulegar upplýsingar um skóla, nemendur og starfsfólk
Eftirfarandi rannsóknir/upplýsingaöflun eru í yfirlitinu til hægri:
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf
- Markmið: Skoða framboð á mat og hreyfingu í skólum og skoða að hve miklu leyti það uppfyllir ráðleggingar Lýðheilsustöðvar
- Framkvæmdaaðili: Lýðheilsustöð
Nám og námsumhverfi nemenda
- Markmið: Safna upplýsingum um námsáhuga nemenda og áhrifaþætti í námsumhverfi þeirra
- Framkvæmdaaðili: Menntavísindasvið Háskóla Íslands
PIRLS
- Markmið: Afla upplýsinga um kennsluaðferðir, aðbúnað, lestrargetu nemenda, verkefni o.fl. Einnig að afla upplýsinga um nemendur, einkenni skólans, tækjabúnað, kennslustundir, vinnuanda o.fl.
- Framkvæmdaaðili: Námsmatsstofnun
PISA
- Markmið: Fá vísbendingar um samhengi niðurstaðna úr kunnáttuprófinu PISA og einkenna skólakerfisins
- Framkvæmdaaðili: Námsmatsstofnun
Skólavogin
- Markmið: Könnun á viðhorfum starfsfólks til skóla og starfs auk almennra og tölulegra upplýsinga um skóla, nemendur og starfsfólk
- Framkvæmdaaðili: Samband íslenskra sveitarfélaga
Starfshættir í íslenskum grunnskólum
- Markmið: Að veita yfirsýn yfir núverandi starfshætti í íslenskum grunnskólum
- Framkvæmdaaðili: Menntavísindasvið Háskóla Íslands
TALIS
- Markmið: Afla gagna frá kennurum um störf þeirra, vinnuumhverfi og aðstæður og afla gagna um hlutverk og starfshætti stjórnenda
- Framkvæmdaaðili: Námsmatsstofnun
The learning and teaching of children´s literature in Europe
- Markmið: Að greina stöðu og hlutverk barnabókmennta í kennslu, námi og daglegu lífi barna á aldrinum 8-11 ára og miðla þeirri þekkingu
- Framkvæmdaaðili: Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri
Tölulegar upplýsingar um skólahald
- Markmið: Tölulegar upplýsingar - safnað fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Framkvæmdaaðili: Hagstofa Íslands
Þátttaka nemenda í skólaráðum
- Markmið: Upplýsingar um framfylgd laga m.t.t. þátttöku nemenda í skólaráðum
- Framkvæmdaaðili: Umboðsmaður barna
