Rannsóknir á viðhorfum nemenda grunnskóla

Eftirfarandi rannsóknir á viðhorfum nemenda eru í yfirlitinu til hægri:


Aðbúnaður í skólum. 

  • Markmið:  Að kanna skoðun nemenda á aðbúnaði í skólanum
  • Framkvæmdaaðili:  Umboðsmaður barna 

Borgarvitund ungs fólks í lýðræðisþjóðfélagi. 

  • Markmið:  Að afla þekkingar og skilnings á borgaravitund ungs fólks.  Hugmyndir þeirra um lýðræði, mannréttindi og áhrif fólks
  • Framkvæmdaaðili:  Rannsóknarsetrið Lífshættir barna og ungmenna

Börn og sjónvarp á Íslandi. 

  • Markmið:  Að varpa ljósi á fjölmiðlanotkun barna og unglinga og skoða tómstunda­venjur þeirra.
  • Framkvæmdaaðili:  Félags- og fjölmiðlafræði Háskóla Íslands

European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD). 

  • Markmið:  Að kanna útbreiðslu reykinga, áfengisneyslu og ólöglegrar vímuefnaneyslu meðal unglinga
  • Framkvæmdaaðili:  Háskólinn á Akureyri – Rannsóknarsetur forvarna

Heilsa og lífskjör skólanema  (Health Behaviours in School-Aged Children – HBSC). 

  • Markmið:  Að safna upplýsingum um margvíslega þætti í lífi ungs fólks
  • Framkvæmdaaðili:  Háskólinn á Akureyri – Rannsóknarsetur forvarna
Líðan barna.
  • Markmið: Að kanna almenna líðan barna í skólanum og að skóladegi loknum
  • Framkvæmdaaðili: Umboðsmaður barna

Lífið að skóladegi loknum. 

  • Markmið:  Að afla upplýsinga um viðfangsefni barna að skóladegi loknum
  • Framkvæmdaaðili:  Umboðsmaður barna 

Nám og námsumhverfi nemenda. 

  • Markmið:  Að safna upplýsingum um námsáhuga nemenda og áhrifaþætti í námsumhverfi þeirra
  • Framkvæmdaaðili:  Menntavísindasvið Háskóla Íslands

PIRLS  (Einungis viðhorfshluti PIRLS rannsóknarinnar). 

  • Markmið:  Að kanna lestrargetu barna, tilgang þeirra með lestri, lestrarvenjur og viðhorf til lestrar.
  • Framkvæmdaaðili:  Námsmatsstofnun

PISA  (Einungis viðhorfshluti PISA rannsóknarinnar). 

  • Markmið:  Að kanna hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði, stærðfræði og þrautalausn
  • Framkvæmdaaðili:  Námsmatsstofnun

Samfélag, fjölskylda og tækni (SAFT). 

  • Markmið:  Að greina notkun barna og unglinga á netinu og öðrum skyldum miðlum
  • Framkvæmdaaðili:  Heimili og skóli

Skólapúlsinn 

  • Markmið:  Að afla stöðugra upplýsinga um virkni og líðan nemenda sem nýtast við innra mat skólanna
  • Framkvæmdaaðili:  Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Skólavogin. 

  • Markmið:  Að afla upplýsinga fyrir sveitarfélög sem nýtast þeim við ytra mat á skólum
  • Framkvæmdaaðili:  Samband Íslenskra sveitarfélaga 

Spurningalisti með samræmdum prófum  (Einungis viðhorfshluti prófanna). 

  • Markmið:  Mat nemenda og viðhorf til samræmdra prófa, breytinga á þeim o.fl. s.s. einelti og líðan
  • Framkvæmdaaðili:  Námsmatsstofnun

Starfshættir í íslenskum grunnskólum. 

  • Markmið:  Að veita yfirsýn yfir núverandi starfshætti í íslenskum grunnskólum
  • Framkvæmdaaðili:  Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Streita í lífi grunnskólabarna á Íslandi. 

  • Markmið:  Að kanna viðhorf nemenda til streitu í lífi barna og unglinga á Íslandi
  • Framkvæmdaaðili:  Umboðsmaður barna 

The learning and teaching of children´s literature in Europe. 

  • Markmið:  Að greina stöðu og hlutverk barnabókmennta í kennslu, námi og daglegu lífi barna á aldrinum 8-11 ára og miðla þeirri þekkingu
  • Framkvæmdaaðili: Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri

Ungt fólk. 

  • Markmið:  Að afla upplýsinga um hagi og líðan barna og unglinga á Íslandi
  • Framkvæmdaaðili:  Rannsóknir og greining

Youth in Europe. 

  • Markmið:  Samanburðar rannsókn á högum og líðan barna og ungmenna í 18 borgum í Evrópu
  • Framkvæmdaaðili:  Rannsóknir og greining



Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica