Matstæki fyrir leikskóla

ECERS kvarðinn

ECERS (Early Childhood Environment Rating Scale www.unc.edu/~ecers) er kvarði til að meta í heild umhverfi og uppeldisstarf leikskólans og starf leikskólakennara.  Einnig er hægt að nota kvarðann til að meta einstaka þætti starfsins.  ECERS kvarðinn kemur frá Bandaríkjunum og er ætlaður til að meta leikskólastarf fyrir 3-6 ára börn.  Hann var þýddur og staðfærður af Sesselju Hauksdóttur og Gerði Guðmundsdóttur.

ECERS kvarðinn gefur tölulegar upplýsingar sem eru vel til þess fallnar að fylgjast með breytingum milli ára og gerir leikskólanum kleift að bera sig saman við aðra leikskóla sem nota kvarðann.  Kvarðinn nýtist vel sem einn þáttur í innra mati leikskóla.

Eftirfarandi atriði eru lögð til grundvallar:

  • Hvað þarf hvert barn í leikskóla til þess að þroskast andlega, félagslega, tilfinningalega og vistmunalega?
  • Hvernig skipuleggja leikskólakennarar umhverfið þannig að það mæti sem best þörfum barnanna?

Markmið  ECERS kvarðans er að auka gæði í starfinu með börnunum.

Framkvæmd og fyrirlögn er í höndum starfsfólks skólans.  Góðar leiðbeiningar um notkun kvarðans eru í handbók.

Kostnaður.  Kvarðinn kostar 1.000 krónur (margnota) og úrvinnsluhefti kostar 100 krónur (einnota).

Kvarða og úrvinnsluhefti er hægt að nálgast hjá Sesselju og Gerði á leikskólaskrifstofu Kópavogs:  sesselja@kopavogur.is  og  gerdur@kopavogur.is , og veita þær einnig nánari upplýsingar ef þörf er.

Uppbygging ECERS kvarðans:  ECERS kvarðinn samanstendur af sjö þáttum sem innihalda hver um sig nokkur atriði sem metin eru eftir sjö stiga kvarða.  Þættirnir eru:

  • Rými og búnaður: Húsgögn, búnaður til leiks og náms og fyrir rólegheit/slökun, skipulagning húsnæðis/rýmis, tími og rými til að vera einn og í friði, rými og búnaður fyrir grófhreyfingar, aðgengi efniviðar/leikefnis fyrir börnin.
  • Umönnun og daglegt líf: Að taka á móti og skila börnunum, máltíðir/hressing, hvíld/róleg stund, hreinlæti, að klæða sig úr og í.
  • Mál- og hugtakanám: Málörvun, málnotkun, hugtakanám/rökhugsun, óformleg málnotkun.
  • Leikur/viðfangsefni: Fínhreyfingar/skynjun, myndíð og mótun, tónlist og hreyfing, byggingarleikir, sandur og vatn, hlutverkaleikir, náttúra/vísindi/tilraunir, stærðfræði, mismunandi menning.
  • Samskipti/skipulag: Samskipti við börn, starfsandi - agi, dagskipulag, leikur, hópvinna, sérkennsla.
  • Starfsmenn og foreldrar: Samvinna/samskipti við foreldra, starfsmenn, aðila utan skóla, starfsmannaaðstaða, starfsþróun, vinnuaðstaða.

Barnið í brennidepli

Barnið í brennidepli

Barnið í brennidepli er matsaðferð sem er byggð á skoskri aðferð sem kallast "The Child at the Centre." Hún samanstendur af sjö lykilþáttum sem innihalda 26 árangursvísa sem hver um sig hefur einn til fimm kjarna. Árangursvísarnir eru notaðir til að finna sterkar hliðar leikskóla­starfsins og þá þætti sem þarf að leggja áherslu á til að viðhalda gæðum eða auka þau. Hildur Skarphéðinsdóttir þýddi og staðfærði. 

Matið byggir á að leita svara við þremur grundvallarspurningum:

  • Hvar stöndum við?
  • Hvernig vitum við það?
  • Hvað ætlum við að gera næst?

Ef Barnið í brennidepli er notað í heild sinni í innra mati leikskóla telst matið altækt þar sem það nær til helstu þátta skólastarfsins og notar fjölbreyttar leiðir við öflun gagna.

Á þriðja tug leikskóla nota Barnið í brennidepli til að meta skólastarfið.  Leikskólinn Hamraborg hefur hvað mesta reynslu að notkun þess þar sem hann hefur byggt sjálfsmat sitt á aðferðinni til margra ára: http://www.hamraborgin.is/images/stories/file/Ytra%20mat.pdf

Tilgangur matsaðferðarinnar er að meta gæði leikskólastarfsins.  Henni er meðal annars ætlað að vekja starfsfólk til umhugsunar um markmið leikskólans, hvernig skipulagið er miðað við þessi markmið og hvernig tekst að ná markmiðunum.  Ennfremur að greina þá þætti sem þurfa umbóta við og skipuleggja áætlun um þróun og umbætur í framhaldi af því.

Framkvæmd og gagnaöflun er í höndum starfsfólks leikskólans.  Hægt er að fara margar leiðir við að afla gagna s.s. með spurningalistum, viðtölum, rýnihópum, athugunum, gátlistum o.s.frv.  Góðar leiðbeiningar um aðferðina fylgja með í möppu og er farið yfir ferlið allt frá skipulagi á sjálfsmatsvinnu til umbóta.  Allt starfsfólk tekur þátt og foreldrar og börn eftir því sem við á.

Kostnaður.  Mappan kostar um 10.000 krónur og er til sölu hjá A4.

Lykilþættir Barnið í brennidepli eru sjö.  Hver lykilþáttur inniheldur nokkra undirþætti (árangursvísa): 

  • Námskrá: Uppbygging námskrár, gæði áætlana, gæði dagskipulags.
  • Þroski og framfarir barnanna: Framfarir barnanna í þroska og námi.
  • Nám í gegnum leikinn: Gæði náms í gegnum leikinn, samskipti barna og starfsfólks, að mæta þörfum barnanna, mat og gagnasöfnun.
  • Stuðningur við börn og fjölskyldur: Samræmt uppeldisstarf, samræmi uppeldis og menntunar, stuðningur í uppeldi og námi, stuðningur við börn með sérþarfir.
  • Vinnusiðfræði leikskólans: Starfsandi, jafnrétti og réttsýni, samvinna við foreldra, tengsl við aðra leikskóla, grunnskóla og aðrar stofnanir, samvinna starfsfólks.
  • Námsumhverfi leikskólans: Húsnæði og almennur aðbúnaður, framboð námsgagna, ráðning og hæfni starfsfólks, starfsþróun og endurmat.
  • Stjórnun: Sjálfsmat, markmið og stefnumörkun, áætlun til aukins árangurs, stjórnandinn, virkni starfsfólks.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Einarsdóttir leikskólaráðgjafi á Leikskólasviði Reykjavíkur:  sigrun.einarsdottir@reykjavik.is



Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica