Skólapúlsinn
Skólapúlsinn er þróunarverkefni sem rekið er af fyrirtækinu Skólapúlsinn ehf. Vinna við verkefnið hófst í byrjun árs 2008. Skólapúlsinn er vefkerfi sem miðar að því að veita skólastjórnendum stöðugan aðgang að nýjum upplýsingum sem aflað er mánaðarlega um þætti sem tengjast virkni nemenda og líðan þeirra í skólanum og um skóla- og bekkjaranda.
Metinn er 21 þáttur með spurningalista á netinu fyrir nemendur í 6.-10. bekk sem tekur um 20 mínútur að svara. Niðurstöður um stöðu nemenda eru bornar saman við niðurstöður fyrri mælinga í skólanum og við landsmeðaltal sem gefur vísbendingar um þróun mála í skólanum og stöðu nemenda í skólanum miðað við nemendur í öðrum skólum í landinu.
Einnig eru veittar upplýsingar um kynjamun, um stöðu eftir árgöngum, hlutfall svara við einstökum spurningum. Niðurstöður birtast á læstu vefsvæði skólans eftir hvern úrtaksmánuð í línu- og súluritum.
Skólapúlsinn er ekki altækt matstæki fyrir grunnskóla en nýtist vel sem einn þáttur í innra mati þeirra. Fjöldi þátttökuskóla í september 2010: 71
Markmið Skólapúlsins er að:
- útvega skólastjórnendum og skólaskrifstofum áreiðanleg, langtímamiðuð, samanburðarhæf og aðgengileg gögn um mikilvæga þætti í skólastarfinu.
- þátttaka í Skólapúlsinum krefjist engra námskeiða og valdi engum meiriháttar truflunum í daglegu starfi skólanna.
- byggja upp gagnabanka innan Háskóla Íslands sem mun með tímanum opna einstaka möguleika fyrir rannsóknir á sviði kennslu- og uppeldisfræða.
. Fyrirlögn er rafræn.Tilviljunarúrtök eru skilgreind fyrir hvern skóla, 1-3 (fyrir minni skóla) eða 4-9 úrtök (fyrir stærri skóla) dreift jafnt yfir allt skólaárið (september – maí). Úrtökin geta verið mánaðarleg í skólum með 360 eða fleiri nemendur samanlagt í 6.-10. bekk en sjaldnar fyrir fámennari skóla. Fjöldi nemenda í hverju úrtaki er jafn úr hverjum árgangi og eftir kyni. Eftir heilt ár í Skólapúlsinum hafa allir nemendur í 6. – 10. bekk hafi haft tækifæri til að svara listanum einu sinni.
Þátttökugjald. Árgjald 43.000 krónur fyrir skóla með 160 eða fleiri nemendur í 6.-10. bekk og 24.000 krónur fyrir skóla með færri en 160 nemendur í 6.-10. bekk.
Spurningalisti fyrir nemendur. Spurningalistinn samanstendur af rúmlega 100 spurningum sem skiptast í fjóra flokka: Virkni nemenda, líðan nemenda, skóla og bekkjarandi. Þættir sem spurt er um eru: Ánægja af lestri, trú á eigin getu í íslensku, stærðfræði og náttúrufræði, stjórn á eigin árangri, þrautsegja í námi, fjarvera, áhugi á stærðfræði, sjálfstraust, stjórn á eigin lífi, vanlíðan, kvíði, einelti, samsömun við nemendahópinn, samband nemanda við kennara, agi í tímum, hvatning kennara, virk þátttaka nemanda í tímum, mikilvægi heimavinnu í náminu og trú á eigin vinnubrögð í námi.
Nemendur geta valið um að svara könnuninni á íslensku, dönsku, sænsku, pólsku, ensku, litháísku og tagalog (tungumál Filippseyja).
Sjá nánar á heimasíðu verkefnisins: http://skolapulsinn.is/
