Skólamat Outcome

Skólamat Outcome

Skólamat er rafrænt kannanakerfi, sem hannað var af Sif Vígþórsdóttur og Valdimar Helgasyni með matsþarfir Hallormsstaðaskóla og Ölduselsskóla í huga.  Tilgangur þess er að bjóða upp á matstæki sem hægt er að laga að þörfum hvers skóla og leggur þannig grunn að frekari skólaþróun.   Skólamat samanstendur af þrjátíu og einni vefkönnun fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skóla sem hver um sig inniheldur tíu spurningar.  Auðvelt er að breyta spurningum vefkannananna og sníða þær þannig að þörfum hvers skóla. 

Vefkannanir Skólamats ná til helstu þátta skólastarfsins og nýtast vel sem hluti af innra mati skóla.  Í handbók, sem er aðgengileg á heimasíðu Skólamats, er sett fram hugmynd að þriggja ára matsáætlun sem skólar geta stuðst við.

Fjöldi skóla sem nota Skólamat Outcome eru um 20

Markmið Skólamats er að fá raunmynd af stöðu þeirra þátta sem skólastarfið og umgjörð þess snýst um til þess að því að gera gott starf betra. 

Framkvæmd og fyrirlögn:  Skólamat er lagt fyrir í gegnum Outcome kannanakerfi.  Framkvæmd og úrvinnsla er í höndum starfsfólks skólans en gagnaúrvinnsla og skýrslugerðartól er innifalið kerfinu.  Öll gögn og skýrslur eru vistuð miðlægt hjá Outcome en auðvelt er að vista þau með öðrum hætti líka. 

Þátttökugjald:  Almennur stofnkostnaður við kaup, uppsetningu og kennslu á Outcome kannanakerfinu liggur á bilinu 30.000 - 100.000 krónur eftir stærð skóla.  Sveitarfélög geta gert rammasamning með hagstæðari verðum fyrir sína skóla.  Spurningasafn Skólamats kostar aukalega 100.000 krónur.  Ekkert áskriftargjald er tekið en skólar greiða fyrir hverja senda könnun á bilinu 15.000 - 25.000 krónur eftir umfangi könnunar.  Ofangreind verð eru án vsk.

Tungumál.  Spurningasafn Skólamats er eingöngu á íslensku.

Viðfangsflokkar Skólamats

  • Líðan
  • Samskipti
  • Almenn viðhorf til skólans
  • Starfið í skólanum
  • Nám og kennsla
  • Stjórnun, stefnumörkun og skipulag
  • Upplýsingastreymi

Sjá nánar á heimasíðu Skólamats:  http://www.skolamat.is/skolamat-outcome/


Verkefni sveitarfélaga



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica